Quantcast
Channel: DV
Viewing all 50663 articles
Browse latest View live

Frægir taka þátt í 10 ára áskorun –„Mér fannst ég æðisleg. Það var lítið um highlights and contouring back in the days“

$
0
0

Það eru næstum allir og amma þeirra að taka þátt í 10 ára áskoruninni. Hún er ekki flókin, að birta tvær myndir af sér til samanburðar á samfélagsmiðlum, Facebook, Twitter eða Instagram, já eða bara þeim öllum: eina mynd eins og viðkomandi leit út fyrir 10 árum og aðra eins og hann lítur út í dag.

Ísland vaknar þrennan á útvarpsstöðinni K100: Kristín Sif, Jón Axel Ólafsson og Ásgeir Páll Ágústsson

Ingólfur H. Geirdal, gítarleikari DIMMU og töframaður: „2005 Vs. 2019. Fyrsta DIMMU promo myndin sem var tekin af kallinum…og sú nýjasta.“

Mynd: Bragi Haraldsson (2005) og Ólöf Erla Einarsdóttir (2019)

Eva Ruza gleðigjafi og alt muligt kona: „Mér fannst ég æðisleg….26 yrs vs. 36 yrs. Það var lítið um highlights and contouring back in the days.“

Guðmundur Fylkisson sem leitar að Týndu börnunum

Þórhallur Þórhallsson uppistandari: „10 ár á milli. Aðeins feitari en betur greiddur.

Sigmar Vilhjálmsson er með húmorinn að vopni: „Orð eru óþörf“

Heiðar Austmann útvarpsmaður á K100: „Ekkert breyst nema að nokkur kg hafi bæst við (lesist massi) en það er bara kúl.“

Aron Mola leiklistarnemi

Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G. útvarpsmaður

Kjartan Atli Kjartansson útvarpsmaður

Selma Björnsdóttir söngkona og leikstjóri með meiru

Sigurður Sólmundarson, Costco gaurinn skemmtilegi

Gerður Huld Arinbjarnar eigandi Blush

Samfélagsmiðlastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir, Guðrún Veiga Jónsdóttir og Sólrún Diego

Elva Hrund Ágústsdóttir stílisti og snillingur

Instagram Photo

Berglind Pétursdóttir, Berglind Festival, samfélagsmiðlaskvísa og fjölmiðlakona


Elísabet Ormslev söngkona

Instagram Photo

Alda Coco Jónsdóttir fyrirsæta

Instagram Photo

Nokkrir setja smá twist á 10 ára áskorunina, eins og Rikka athafna- og fjölmiðlakona.

Ótrúleg breyting á Atla Fannari:Birti mynd af sér fyrir 10 árum – Sjáðu muninn 

The post Frægir taka þátt í 10 ára áskorun – „Mér fannst ég æðisleg. Það var lítið um highlights and contouring back in the days“ appeared first on DV.


Gunnar Smári birtir lista yfir 330 ríkustu „bótaþegana“ á Íslandi – Sjáðu listann

$
0
0

Gunnar Smári Egilsson Sósíalistaforingi birti í dag lista yfir 330 einstaklinga og hvað þeir hefðu greitt meira í fjármagnstekjuskatt í Danmörku en á Íslandi. Hann segir í færslu á síðu Sósíalistaflokks Íslands að þetta séu „helstu styrkþegar ríkisins á meðal hinna tekjuhæstu“, hefur hann einnig talað um þennan hóp sem „bótaþega“. Um sé að ræða þróun á tímum nýfrjálshyggju sem miði að því að lækka fjármagnstekjuskatt.

Stundin birti á vef sínum í morgun lista yfir tekjuhæstu 330 Íslendingana árið 2016, byggða á upplýsingum af vefnum tekjur.is, en vefnum var lokað. Tekjublað DV byggir aðeins á launatekjum en þessi listi byggir einnig á fjármagnstekjum. Þau voru alls með 60 milljarða í heildartekjur árið 2016 og greiddu af þeim 23,3% skatt.

Gunnar Smári segir að sá listi dugi til að bera saman skatta þessa 330 einstaklinga við þá skatta sem þau hefðu þurft að greiða í Danmörku: „Til að sjá hvernig bylting hinna ríku hefur leikið ríkisreksturinn ættum við að gera kröfu um að fá blaðsíður fremst í fjárlögin, sem sýna styrki til auðugasta fólksins. Til dæmis með því að bera skattheimtuna hér við skattheimtu landa, sem gengu ekki jafn langt inn blindgötu nýfrjálshyggjunnar.“

Hann setur þó þann fyrirvara á að það vanti marga af ríkustu Íslendingunum, en á listanum séu þeir sem hafi há laun, greitt sér mikinn arð eða selt eignir.  „Það er margt auðugt fólk sem á miklar eignir en tók sér minna en 5,2 m.kr. á mánuði í arð eða laun, en það voru mörkin til að ná inn fyrir 0,1 prósent hinna tekjuhæstu árið 2016, jafngildi 21faldum lágmarkslaunum þess tíma,“ segir Gunnar Smári.

„En ef við beitum danska skattkerfinu til samanburðar þá var stuðningur ríkissjóðs við hin tekjuhæstu þessi vegna tekna ársins 2016. Þetta eru hinir raunverulegu bótaþegar nýfrjálshyggjunnar:

STYRKUR RÍKISINS TIL HINNA 330 TEKJUHÆSTU

1. Sigurður Þ K Þorsteinsson: -700,6 m.kr.
2. María Bjarnadóttir: -695,4 m.kr.
3. Gísli J Friðjónsson: -625,0 m.kr.
4. Einar Friðrik Sigurðsson: -421,5 m.kr.
5. Katrín Þorvaldsdóttir: -398,7 m.kr.
6. Guðmundur Kristjánsson: -251,3 m.kr.
7. Ármann Einarsson: -175,0 m.kr.
8. Marta Árnadóttir: -163,9 m.kr.
9. Grímur Alfreð Garðarsson: -163,8 m.kr.
10. Guðrún Birna Leifsdóttir: -153,6 m.kr.

11. Brynjólfur Gunnar Halldórsson: -138,6 m.kr.
12. Benedikt Rúnar Steingrímsson: -121,9 m.kr.
13. Magnús Jóhannsson: -119,5 m.kr.
14. Kristín Fenger Vermundsdóttir: -117,3 m.kr.
15. Jón Sigurðsson: -116,5 m.kr.
16. Ari Fenger: -116,3 m.kr.
17. Hinrik Kristjánsson: -105,6 m.kr.
18. Henning Jóhannesson: -105,0 m.kr.
19. Eiríkur Ingvar Þorgeirsson: -96,0 m.kr.
20. Árni Pétur Jónsson: -93,2 m.kr.

21. Sigurjón Runólfsson: -92,0 m.kr.
22. Magnús Ólafsson: -91,3 m.kr.
23. Ragnheiður Runólfsdóttir : -91,0 m.kr.
24. Kristján Guðmundsson: -90,7 m.kr.
25. Jón Sigurður Pálsson: -89,6 m.kr.
26. Guðjón Vilbergsson: -77,3 m.kr.
27. Guðjón Hólm Guðjónsson: -73,1 m.kr.
28. Jóhannes Óskar Grettisson: -69,9 m.kr.
29. Halldóra Lilja Helgadóttir: -69,9 m.kr.
30. Ólafur Björnsson: -69,4 m.kr.

31. Matthías Guðmundsson: -67,7 m.kr.
32. Helga S. Guðmundsdóttir: -66,5 m.kr.
33. Sigríður Matthíasdóttir: -65,3 m.kr.
34. Jón Halldórsson: -60,9 m.kr.
35. Birgir Örn Birgisson: -59,3 m.kr.
36. Friðrik Örn Haraldsson: -58,8 m.kr.
37. Kári Jónsson: -58,2 m.kr.
38. Ómar Ásgeirsson: -57,5 m.kr.
39. Þorsteinn Már Baldvinsson: -56,6 m.kr.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja

40. Dagur Brynjólfsson: -54,8 m.kr.

41. Guðni Már Brynjólfsson: -54,7 m.kr.
42. Laufey Jóhannesdóttir: -54,6 m.kr.
43. Baldur Björnsson: -52,6 m.kr.
44. Anna Guðný Hermannsdóttir: -52,2 m.kr.
45. Grímur Karl Sæmundsen: -51,7 m.kr.
46. Páll Guðmundsson: -51,5 m.kr.
47. Guðrún Helga Lárusdóttir: -49,0 m.kr.
48. Októ Einarsson: -48,7 m.kr.
49. Andri Þór Guðmundsson: -48,6 m.kr.
50. Eggert Árni Gíslason: -48,2 m.kr.

51. Freyr Steinar Gunnlaugsson: -48,1 m.kr.
52. Margrét Ásgeirsdóttir: -46,9 m.kr.
53. Kristinn Ágústsson: -46,6 m.kr.
54. Poul Janen: -45,1 m.kr.
55. Jón Helgi Guðmundsson: -44,7 m.kr.
56. Elín Thorarensen: -43,7 m.kr.
57. Egill Fannar Reynisson: -42,5 m.kr.
58. Kristján Loftsson: -41,6 m.kr.
59. Haraldur Líndal Haraldsson: -41,6 m.kr.
60. Guðbjörg Hanna Gylfadóttir: -39,4 m.kr.

61. Guðrún Ýrr Tómasdóttir: -38,6 m.kr.
62. Elmar Freyr Jensen: -38,6 m.kr.
63. Magnús Kristinn Ingason: -37,9 m.kr.
64. Kristján V. Vilhelmsson: -37,8 m.kr.
65. Skúli Jóhannesson: -37,5 m.kr.
66. Valur Ragnarsson: -36,9 m.kr.
67. Stefán Friðfinnsson: -36,7 m.kr.
68. Óðinn Eymundsson: -36,6 m.kr.
69. Benedikt Sveinsson: -36,5 m.kr.
70. Kristþór Gunnarsson: -36,3 m.kr.

71. Arnór Víkingsson: -36,1 m.kr.
72. Bert Martin Hanson: -36,0 m.kr.
73. Sigurður Reynir Harðarson: -35,2 m.kr.
74. Gísli Már Vilhjálmsson: -35,2 m.kr.
75. Hannes Hilmarsson: -35,0 m.kr.
76. Gunnar Ásgeirsson: -33,8 m.kr.
77. Bjarni Þór Óskarsson: -33,6 m.kr.
78. Ársæll Hafsteinsson: -33,5 m.kr.
79. Benedikt Stefánsson: -33,5 m.kr.
80. Ingvaldur Ásgeirsson: -33,1 m.kr.

81. Ingólfur Arnarsson: -33,0 m.kr.
82. Guðmundur Ásgeirsson: -32,9 m.kr.
83. Stefán Arnarson: -32,8 m.kr.
84. Björg Ólafsdóttir: -32,7 m.kr.
85. Halldór Halldórsson: -32,7 m.kr.
86. Birna Loftsdóttir: -32,7 m.kr.
87. Guðmundur Guðlaugur Gunnarsson: -32,6 m.kr.
88. Erlingur Arnarson: -32,4 m.kr.
89. Árni Eyfjörð Halldórsson: -32,2 m.kr.
90. Hafþór Þórisson: -32,0 m.kr.

91. Sigurvin Breiðfjörð Guðfinnsson: -31,8 m.kr.
92. Örn Arnarson: -31,7 m.kr.
93. Þórunn Þorvaldsdóttir: -31,4 m.kr.
94. Stefán Garðar Níelsson: -29,6 m.kr.
95. Helgi Vilhjálmsson: -29,5 m.kr.
96. Kristján Benoni Kristjánsson: -29,5 m.kr.
97. Símon Sigurður Sigurpálsson: -29,4 m.kr.
98. V. Róbert Wessman: -29,3 m.kr.

Róbert Wessman

99. Bjarni Skarphéðinn G. Bjarnason: -29,1 m.kr.
100. Guðmundur Marteinsson: -29,0 m.kr.

101. Skúli Gunnar Sigfússon: -28,8 m.kr.
102. Kristinn Bjarnason: -28,7 m.kr.
103. Helgi Magnússon: -28,6 m.kr.
104. Kristinn Reynir Gunnarsson: -28,2 m.kr.
105. Hjörleifur Finnsson: -28,0 m.kr.
106. Högni Pétur Sigurðsson: -27,5 m.kr.
107. Aðalsteinn Karlsson: -27,2 m.kr.
108. Geir Gunnar Geirsson: -27,1 m.kr.
109. Sigurður G. Hilmarsson: -27,1 m.kr.
110. Aðalsteinn Helgason: -27,1 m.kr.

111. Úlfar Schaarup Hinriksson: -27,1 m.kr.
112. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir: -26,9 m.kr.
113. Guðmundur Arason: -26,5 m.kr.
114. Páll Lárus Sigurjónsson: -26,3 m.kr.
115. Arnar Þórisson: -26,2 m.kr.
116. Sigurður Elías Guðmundsson: -26,1 m.kr.
117. Þórir Kjartansson: -25,9 m.kr.
118. Jóhannes G. Henningsson: -25,7 m.kr.
119. Valdimar Bergstað: -25,7 m.kr.
120. Einar Þór Magnússon: -25,6 m.kr.

121. Pratik Kumar: -25,6 m.kr.
122. Þórður Sverrisson: -25,5 m.kr.
123. Aðalsteinn Egill Jónasson: -25,1 m.kr.
124. Guðjón Rúnarsson: -25,1 m.kr.
125. Rut Ásgeirsdóttir: -24,7 m.kr.
126. Þórður Óskarsson: -24,7 m.kr.
127. Sveinn Logi Sölvason: -24,6 m.kr.
128. Stefán Þór Benediktsson: -24,6 m.kr.
129. Jóhann Halldórsson: -24,5 m.kr.
130. Gréta Björg Egilsdóttir: -24,3 m.kr.

131. Bjarni Hafþór Helgason: -24,3 m.kr.
132. Hörður Kristjánsson: -24,2 m.kr.
133. Jón Gunnar Jónsson: -24,1 m.kr.
134. Ingólfur Ásgrímsson: -23,8 m.kr.
135. Erla Björg Guðrúnardóttir: -23,7 m.kr.
136. Markús Guðmundsson: -23,7 m.kr.
137. Sigurður Hrafn Kiernan: -23,4 m.kr.
138. Ingunn Sigurðardóttir: -23,2 m.kr.
139. Jón Thors: -23,1 m.kr.
140. Guðbjartur Örn Einarsdóttir: -22,9 m.kr.

141. Valþór Þorgeirsdóttir: -22,8 m.kr.
142. Magnús R. Jónsson: -22,7 m.kr.
143. Finnur Árnason: -22,7 m.kr.
144. Sturla Orri Arinbjarnarson: -22,5 m.kr.
145. Óskar Eyjólfsson: -22,4 m.kr.
146. Birgir Sigurðsson: -22,1 m.kr.
147. Matthías Kjeld: -22,1 m.kr.
148. Egill Ágústsson: -22,0 m.kr.
149. Símon Ragnarsson: -22,0 m.kr.
150. Guðmundur B. Gunnarsson: -21,8 m.kr.

151. Össur Kristinsson: -21,8 m.kr.
152. Gylfi Gíslason: -21,7 m.kr.
153. Bergljót Ingólfsdóttir: -21,6 m.kr.
154. Guðmundur Aðalsteinsson: -21,4 m.kr.
155. Guðrún Arnfinnsdóttir: -21,4 m.kr.
156. Elín Ólafsdóttir: -21,4 m.kr.
157. Georg Mikaelsson: -21,4 m.kr.
158. Gísli Viðar Guðlaugsson: -21,3 m.kr.
159. Sigurður Matthíasson: -21,1 m.kr.
160. Aðalbjörg Jakobsdóttir: -21,0 m.kr.

161. Gunnar I. Hafsteinsdóttir: -21,0 m.kr.
162. Hreggviður Jónsson: -20,9 m.kr.

Hreggviður Jónsson.

163. Guðmunda Inga Veturliðadóttir: -20,9 m.kr.
164. Guðmundur Gauti Reynisson: -20,6 m.kr.
165. Bjarni Theódór Bjarnason: -19,7 m.kr.
166. Finnur Reyr Stefánsson: -19,6 m.kr.
167. Bergþóra Karen Ketilsdóttir: -19,5 m.kr.
168. Gunnar Þór Benjamínsson: -19,4 m.kr.
169. Stefán Ágúst Magnússon: -19,4 m.kr.
170. Bjarni Þorvarður Ákason: -19,3 m.kr.

171. Finnur Geirsson: -19,2 m.kr.
172. Kristján E. Gunnarsson: -19,0 m.kr.
173. Erlingur Kristinn Guðmundsson: -18,8 m.kr.
174. Jóhanns Halldóra Sigurðardóttir: -18,8 m.kr.
175. Aðalsteinn Valdimarsson: -18,7 m.kr.
176. Herdís Hallmarsdóttir: -18,7 m.kr.
177. Birgir Össurarson: -18,6 m.kr.
178. Leifur Örn Svavarsson: -18,6 m.kr.
179. Jón Pálmason: -18,5 m.kr.
180. Þórður Magnússon: -18,5 m.kr.

181. Jóhann Ólafur Jónsson: -18,4 m.kr.
182. Áslaug Geirsdóttir: -18,4 m.kr.
183. Ólafur Skúli Indriðason: -18,4 m.kr.
184. Kristín Geirsdóttir: -18,4 m.kr.
185. Sigríður Vilhjálmsdóttir: -18,4 m.kr.
186. Árni Ingi Stefánsson: -18,4 m.kr.
187. Magnús Guðjónsson: -18,3 m.kr.
188. Kristján Gunnar Ríkharðsson: -18,2 m.kr.
189. Guðbjörg M. Matthíasdóttir: -18,2 m.kr.
190. Benedikts Einarsson: -18,1 m.kr.

191. Davíð Freyr Albertsson: -17,9 m.kr.
192. Jóhannes Rúnar Jóhannsson: -17,9 m.kr.
193. Sverrir Sverrisson: -17,8 m.kr.
194. Hjörtur Ingþórsson: -17,7 m.kr.
195. Guðmundur Sveinn Sveinsson: -17,7 m.kr.
196. Friðrik Skúlason: -17,6 m.kr.
197. Halldór Kristjánsson: -17,6 m.kr.
198. Kristján Einarsson: -17,6 m.kr.
199. Birgir Þórarinsson: -17,5 m.kr.
200. Hólmgeir Guðmundsson: -17,5 m.kr.

201. Þórólfur Gíslason: -17,5 m.kr.
202. Ásgeir Kristjánsson: -17,4 m.kr.
203. Sigurjón Rúnar Rafnsson: -17,3 m.kr.
204. Ásta Þórný Hannesdóttir: -17,2 m.kr.
205. Friðrik Guðmundsson: -17,1 m.kr.
206. Erlingur Bjartur Oddsson: -16,9 m.kr.
207. Snorri Hauksson: -16,8 m.kr.
208. Steingrímur Magnússon: -16,8 m.kr.
209. Jón Rúnar Jónsson: -16,8 m.kr.
210. Sæmundur Ágústsson: -16,8 m.kr.

211. Sigsteinn Páll Grétarsson: -16,7 m.kr.
212. Sveinn Björnsson: -16,6 m.kr.
213. Sigurður Axel Benediktsson: -16,4 m.kr.
214. Friðrik Steinn Kristjánsson: -16,4 m.kr.
215. Frosti Sigurjónsson: -16,4 m.kr.
216. Snorri Hafsteinn Þorkelsson: -16,3 m.kr.
217. Olga Perla Nielsen Egilsdóttir: -16,3 m.kr.
218. Margrét Scheving Thorsteinsson: -16,2 m.kr.
219. Óttar Pálsson: -16,1 m.kr.
220. Gunnar Halldór Sverrisson: -16,0 m.kr.

221. Vigfús Vigfússon: -15,9 m.kr.
222. Elísabet G. Hermannsdóttir: -15,9 m.kr.
223. Albert Þór Magnússon: -15,9 m.kr.
224. Bárður Hreinn Tryggvason: -15,8 m.kr.
225. Vilbergur Flóvent Sverrisson: -15,8 m.kr.
226. Ingi Jóhann Guðmundsson: -15,7 m.kr.
227. Þorbergur Guðmundsson: -15,6 m.kr.
228. Þorsteinn Kristjánsson: -15,6 m.kr.
229. Páll Karlsson: -15,6 m.kr.
230. Sigmundur Unnar Traustason: -15,6 m.kr.

231. Ásgeir Bolli Kristinsson: -15,5 m.kr.
232. Bergþór Jónsson: -15,5 m.kr.
233. Kjartan Haukur Eggertsson: -15,5 m.kr.
234. Jörgen Jörgensen: -15,3 m.kr.
235. Óttar Magnús G. Yngvason: -15,3 m.kr.
236. Jón Gunnarsson: -15,2 m.kr.
237. Sigurbjörg Snorradóttir: -15,1 m.kr.
238. Sigurður R. Gíslason: -15,1 m.kr.
239. Birgir Ómar Halldórsson: -15,0 m.kr.
240. Jón Ólafsson: -14,9 m.kr.

241. Sveinn Kári Valdimarsson: -14,9 m.kr.
242. Arngrímur Brynjólfsson: -14,8 m.kr.
243. Pétur Þór Halldórsson: -14,7 m.kr.
244. Kristján Óskarsson: -14,6 m.kr.
245. Erlendur Magnússon: -14,6 m.kr.
246. Paul David Copley: -14,6 m.kr.
247. Örn Thorstensen: -14,6 m.kr.
248. Haukur Guðmundsson: -14,6 m.kr.
249. Sigfús Þór Elíasson: -14,5 m.kr.
250. Kjartan Snorrason: -14,5 m.kr.

251. Magnús Haukur Magnússon: -14,5 m.kr.
252. Hlynur Jónsson: -14,5 m.kr.
253. Árni Ármann Árnason: -14,3 m.kr.
254. Brandur Steinar Guðmundsson: -14,2 m.kr.
255. Linda Björk Ólafsdóttir: -14,2 m.kr.
256. Ingvar Hafsteinsson: -14,2 m.kr.
257. Birgir Snorrason: -14,2 m.kr.
258. Guðni Kristjánsson: -13,9 m.kr.
259. Hallgrímur T. Ragnarsson: -13,8 m.kr.
260. Ingi Friðbjörnsson: -13,8 m.kr.

261. Gestur Geirsson: -13,8 m.kr.
262. Anna Guðmundsdóttir: -13,7 m.kr.
263. Bjarki Borgdal Magnússon: -13,7 m.kr.
264. Kristján Kjartansson: -13,6 m.kr.
265. Hafdís Jónsdóttir: -13,5 m.kr.
266. Hilmar Ágústsson: -13,5 m.kr.
267. Gylfi Viðar Guðmundsson: -13,5 m.kr.
268. Jón Snorrason: -13,4 m.kr.
269. Sigursteinn Ingvarsson: -13,4 m.kr.
270. Hrólfur Einarsson: -13,4 m.kr.

271. Atli Freyr Sveinsson: -13,4 m.kr.
272. Jón Eiríksson: -13,4 m.kr.
273. Hjalti Jónsson: -13,3 m.kr.
274. Skúli Ferdinandsson: -13,3 m.kr.
275. Ingimar Magnússon: -13,2 m.kr.
276. Óli Þór Barðdal: -13,1 m.kr.
277. Sigurður Óli Sumarliðason: -13,1 m.kr.
278. Hilmar Þór Kristinsson: -13,1 m.kr.
279. Antoníus Þorvaldur Sverrisson: -13,0 m.kr.
280. Lárus Guðbjartsson: -13,0 m.kr.

281. Ólafur Vilhjálmsson: -13,0 m.kr.
282. Alfreð Frosti Hjaltalín: -13,0 m.kr.
283. Sigurður Halldórsson: -13,0 m.kr.
284. Guðrún Björg Guðmundsdóttir: -13,0 m.kr.
285. Einfríður Árnadóttir: -12,9 m.kr.
286. Halldór Guðmundsson: -12,9 m.kr.
287. Arnþór Pálsson: -12,8 m.kr.
288. Reimar Snæfells Pétursson: -12,6 m.kr.
289. Magnús Bogi Pétursson: -12,6 m.kr.
290. Margrét Guðmundsdóttir: -12,6 m.kr.

291. Steinar Bragi Sigurðsson: -12,5 m.kr.
292. Tómas Már Sigurðsson: -12,3 m.kr.
293. Páll Harðarson: -12,3 m.kr.
294. Liv Bergþórsdóttir: -12,1 m.kr.
295. Sigríður Bára Hermannsdóttir: -12,1 m.kr.
296. Ólafur Johnson: -12,1 m.kr.
297. Knútur Grétar Hauksson: -11,8 m.kr.
298. Ari Edwald: -11,7 m.kr.

Ari Edwald, forstjóri MS

299. Sigþór Einarsson: -11,6 m.kr.
300. Árni Oddur Þórðarson: -11,6 m.kr.

301. Fjölnir Torfason: -11,6 m.kr.
302. Björgólfur Jóhannsson: -11,5 m.kr.
303. Sigurður Guðni Guðjónsson: -11,5 m.kr.
304. Geir Valur Ágústsson: -11,3 m.kr.
305. Guðmundur Huginn Guðmundsson: -11,1 m.kr.
306. Ingólfur Hauksson: -11,1 m.kr.
307. Kári Stefánsson: -11,1 m.kr.
308. Kolbeinn Árnason: -11,1 m.kr.
309. Ingólfur Örn Guðmundsson: -10,7 m.kr.
310. Magnús Harðarson: -10,6 m.kr.

311. Jóakim Hlynur Reynisson: -10,0 m.kr.

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto

312. Christopher M. Perrin: -9,9 m.kr.
313. Snorri Arnar Viðarsson: -9,6 m.kr.
314. Magnús Magnússon: -9,5 m.kr.
315. Sigurður Arnar Jónsson: -9,2 m.kr.
316. Rannveig Rist: -9,2 m.kr.

317. Jakob Már Ásmundsson: -9,1 m.kr.
318. Ragnar Björgvinsson: -9,1 m.kr.
319. Halldór Hróarr Sigurðsson: -9,0 m.kr.
320. Árni Harðarson: -9,0 m.kr.

321. Gylfi Sigfússon: -9,0 m.kr.
322. Magnús Jaroslav Magnússon: -8,9 m.kr.
323. Guðlaugur Jónsson: -8,7 m.kr.
324. Halldór Bjarkar Lúðvígsson: -8,5 m.kr.
325. Guðmundur Ósvaldsson: -8,5 m.kr.
326. Magnús Hauksson: -8,5 m.kr.
327. Valur Valsson: -8,4 m.kr.
328. Sólveig Guðrún Pétursdóttir: -7,9 m.kr.
329. Jóhann Jón Þórisson: -7,8 m.kr.
330. Michael Wheeler: -7,7 m.kr.“

The post Gunnar Smári birtir lista yfir 330 ríkustu „bótaþegana“ á Íslandi – Sjáðu listann appeared first on DV.

Við vissum ekki að brokkolí væri svona gott: Hanna slær í gegn með einföldu ketó-salati

$
0
0

Á dögunum var ég að prófa mig áfram með brokkolí og útbjó æðislegt salat sem er frábært sem meðlæti með ýmsum mat eða gott eitt og sér.

Uppskriftin er einföld og fljótleg og hentar vel þeim sem eru á ketó eða á lágkolvetna matarræði.

Lofar góðu.

Ketó brokkolí salat

Hráefni:

2 bollar ferskt brokkolí
4 msk mæjónes (ég nota avocado mæjónes)
rauðlaukur, saxaður smátt
4 sneiðar eldað beikon
salt og pipar

Aðferð:

Mæjónesinu ásamt salti pipar og lauknum blandað saman í skál og hrært vel áður en brokkolí og beikon fær að blandast við.

Þið finnið mig á snapchat þar sem ég sýni allskonar ketó uppskriftir og fleira skemmtilegt 👉 hannsythora. Og með því að fylgja Facebook síðunni minni Hanna Þóra – hönnukökur.

The post Við vissum ekki að brokkolí væri svona gott: Hanna slær í gegn með einföldu ketó-salati appeared first on DV.

Gerður vill réttlæti: „Dóttur minni var nauðgað á hrottafenginn máta“

$
0
0

„Dóttur minni, Áslaugu Perlu, var nauðgað á hrottafenginn máta á 10. hæð í blokk við Engihjalla árið 2000. Gerandinn lagði hana á magann á rör handriðs á 10. hæð og þröngvaði henni yfir það. Héraðsdómur trúði ekki frásögn ákærða, taldi framburð hans ótrúverðugan, en studdist við ýmis gögn sem dómnum þótti sanna að ákærði hefði í raun kastað Áslaugu Perlu fram af svölunum.“

Þetta segir Gerður Berndsen, móðir Áslaugar Perlu, í aðsendri grein í Morgunblaðið. Áslaug Perla var myrt af Ásgeiri Inga Ásgeirssyni. Hann viðurkenndi að hafa stundað kynlíf með henni en margt bendir til þess að hann hafi nauðgað Áslaugu. Þegar hún vildi ekki stunda kynlíf með honum kastaði hann henni fram af svölunum. Ásgeir hlaut 16 ára dóm fyrir verknaðinn en neitaði að hafa hrint stúlkunni fram af svölunum.

Ekki hlustað á vitni

Gerður hefur um langt skeið barist fyrir því að mál dóttur hennar verði tekið upp að nýju. „Hæstaréttardómur var í algjörri þversögn við héraðsdóm. Hann var byggður á sandi; engin sönnunargögn, engin rannsóknarskýrsla og hunsun vitna í héraði. Tæknimaður hjá lögreglu fjallaði um förin á rörinu í héraðsdómi, en Hæstiréttur hunsaði þær upplýsingar. Héraðsdómur fékk prófessor í eðlisfræði við HÍ til að vinna álitsgerð um fallið, sem var unnin samkvæmt útreikningum eðlisfræðinnar og var upp á margar síður: Hinni látnu hafði verið kastað yfir handriðið með takmörkuðum krafti eða hún látin falla niður,“ segir Gerður.

Hún segir að Hæstiréttur hafi hunsað allt sem vitni sögðu í héraðsdómi. „Eftir uppsögn héraðsdóms óskaði ákærði eftir, að dómkvaddur yrði matsmaður til að gefa álit um tilteknar spurningar. Héraðsdómur synjaði beiðninni. Hún var kærð til Hæstaréttar sem samþykkti að talað yrði við eðlisfræðing og lífeðlisfræðing í gegnum síma til að álykta út frá eðlisfræðilegri þekkingu þeirra einni saman. Engin álitsgerð. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar. Þar sem dómarar Hæstaréttar hunsuðu allar upplýsingar vitna í héraði, þá höfðu þeir engin gögn til að dæma eftir,“ segir Gerður.

Ítrekað neitað

Hún segist ítrekað hafa fengið neitanir um endurupptöku. „Dóttur minni var nauðgað. Dómurinn laug upp á hana. Ákærði þröngvaði dóttur minni sannanlega yfir rörið á handriði svalanna. Ég sótti um endurupptöku á málinu 2006 hjá Ríkissaksóknara með aðstoð dómsmálaráðherra, fékk neitun. Aftur 2009 vegna nauðgunar sem var órannsökuð, fékk líka neitun. Ég sendi póst til sérhvers alþingismanns um að setja á fót réttarfarsdómstól og hringdi í þriðjung þeirra. Ég sendi beiðni til endurupptökunefndar 2015 og fékk neitun. Sendi aftur beiðni 2017, þá lét ég fylgja með 75 síður úr lögregluskýrslum, sem sönnunargögn, en fékk aftur neitun,“ segir Gerður.

Hún bendir máli sínu til stuðnings á Guðmundar- og Geirfinnsmálið. „Um endurupptöku dæmdra mála í Hæstarétti: Ef verulegar líkur eru leiddar að því að sönnunargögn sem færð voru fram í máli hafi verið rangt metin svo að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess, þá getur Hæstiréttur orðið við beiðni manns, sem telur sig ranglega sakfelldan eða sakfelldan fyrir mun meira brot en það sem hann hefur framið. Innanríkisráðherra sagði mér að Guðmundar- og Geirfinnsmálið færi til endurupptökunefndar á undanþágu, en í stað þess breytti Alþingi lögunum 2015. Þá gátu makar, börn, foreldrar eða systkini látins dæmds einstaklings fengið samþykkta beiðni um endurupptöku í nefndinni. Áður mátti ekki taka upp mál þar sem látnir einstaklingar áttu hlut að máli. Lögin áttu ekki við um dóttur mína, samt var hún dómfelld fyrir að eiga harkalegar samfarir við ákærða. Hún er dáin af því hún var myrt.“

The post Gerður vill réttlæti: „Dóttur minni var nauðgað á hrottafenginn máta“ appeared first on DV.

Áhrif Van Dijk á Liverpool í tölum

$
0
0

Fáir knattspyrnumenn hafa breytt liði jafn mikið og Virgil Van Dijk hefur breytt Liverpool á einu ári.

Hollenski varnarjaxlinn hefur breytt liði Liverpool til hins betra, slakur varnarleikur heyrir sögunni til.

Van Dijk hefur bundið saman vörn Liverpool sem er í dag orðinn einn helsti styrkleiki liðsins, hann stýrir vörninni eins og herforingi.

Van Dijk kostaði Liverpool 75 milljónir punda frá Southampton en það gæti vel borgað sig, Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og á góðri leið með að vinna deildina í fyrsta sinn í 29 ár.

Með Van Dijk í vörn sinni heldur Liverpool oftar hreinu, fær á sig færri mörk og varnarleikurinn er traustari heilt yfir.

Tölfræði um þetta er hér að neðan.

The post Áhrif Van Dijk á Liverpool í tölum appeared first on DV.

Liverpool hefur ekki áhuga á að fá Coutinho aftur

$
0
0

Philippe Coutinho leikmaður Barcelona er orðaður við lið á Englandi þessa dagana. Hann fær lítið að spila hjá Barcelona.

Coutinho hefur ekki náð flugi eftir að Barcelona keypti hann frá Liverpool fyrir ári síðan.

Spænskir miðlar segja að Coutinho sé á óskalista Manchester United og þá myndi Liverpool hafa áhuga aftur.

Telegraph segir það rangt að Liverpool hafi áhuga, sagt er að félagið hafi ekki neinn áhuga á að fá Coutinho aftur.

Coutinho fór frá Liverpool fyrir 142 milljónir punda fyrir ári síðan en hann gæti yfirgefið Barcelona næsta sumar, ef staða hans breytist ekki. Þá gæti Barcelona viljað selja hann til að fjármagna kaup á Neymar frá PSG.

The post Liverpool hefur ekki áhuga á að fá Coutinho aftur appeared first on DV.

City, United og Chelsea vilja öll fá sama bakvörðinn næsta sumar

$
0
0

Ef mark má taka á enskum blöðum þá verður hart barist um Aaron Wan-Bissaka, hægri bakvörð Crystal Palace næsta sumar.

Wan-Bissaka hefur vakið athygli á þessu tímabili fyrir vaska framgöngu sína í herbúðum Palace.

Hann hefur spilað afar vel í hægri bakverðinum og verið sterklega orðaður við Manchester City.

Í dag er fjallað um að Manchester United og Chelsea vilji einig fá Wan-Bissaka næsta sumar.

Búist er við að Manchester United losi sig við Antonio Valencia og þá er Ashley Young að eldast.

United hefur Diogo Dalot í sínum röðum en félagið vill styrkja þessa stöðu og gæti Wan-Bissaka sem er 21 árs hentað í það.

The post City, United og Chelsea vilja öll fá sama bakvörðinn næsta sumar appeared first on DV.

Fæddist með snúna fætur og lítur út eins og könguló

$
0
0

Villiköttur sem sjálfboðaliðum tókst að handfanga eignaðist kettlinga fljótlega eftir að henni var komið fyrir í öruggt skjól. Skömmu eftir fæðingu var læðan, ásamt kettlingum sínum sett í fóstur svo hún gæti alið kettlingana sína upp í rólegu umhverfi.

Konan sem tók kettina að sér heitir Tracy Pitisci og færði hún þá á heimili sitt aðeins nokkrum klukkustundum eftir að þeir fæddust. Þegar kettlingarnir stækkuðu tók Tracy eftir því að einn kettlingurinn sem hún nefndi Aries var ólíkur hinum. Báðir afturfætur Aries voru snúnir sem gerði það að verkum að hann leit út eins og könguló.

Sagði Tracy í viðtali við The dodo að fætur Aries hefðu legið alveg upp að maga hans og að greinilega mátti sjá að liðirnir beindu ekki í rétta átt. Tracy tók ákvörðun um að taka Aries að sér í varanlegt fóstur og segir hún að þrátt fyrir galla sinn stöðvi það hann ekki.

Samkvæmt Tracy lifir Aries hamingjusamlegu lífi. Hann á í nokkrum erfiðleikum með það að komast upp úr leikgrindinni sinni, hann getur ekki hoppað og hann vill frekar hlaupa um á rassinum heldur en að ganga. Það stöðvar hann þó ekki frá því að leika sér, klifra yfir hindranir og að kanna heiminn. Aries upplifir engan sársauka og það eina sem er að hjá Aries er að hann lítur öðruvísi út heldur en aðrir kettir.

The post Fæddist með snúna fætur og lítur út eins og könguló appeared first on DV.


Alræmda partípían hætti að drekka og umbreyttist

$
0
0

Fyrirsætan Kate Moss fagnaði 45 ára afmæli sínu í vikunni á Dorchester-hótelinu í London. Kate var þekkt um árabil sem mikil gleðskapskona og birti breska pressan margoft myndir af henni blindfullri á götum Lundúnaborgar.

Í annarlegu ástandi.
Erfitt kvöld.

Kate var alræmd fyrir drykkju sína. Í raun drakk hún svo mikið áfengi að hún gekk undir viðurnefninu Tankurinn þar sem hún gat drukkið freyðivín á morgnana, vín og vodka með hádegismatnum og skellt sér síðan á galeiðuna um kvöldið.

Nú er hins vegar öldin önnur þar sem Kate hætti að drekka áfengi fyrir rúmlega ári síðan og breytti um lífsstíl til að vera sem heilbrigðust. Í dag drekkur Kate óáfenga kokteila, fer á safakúra og mætir reglulega í heilsurækt.

Kate hefur verið edrú í rúmt ár.

Það sést greinilega á afmælismyndum Kate og hefur hún sjaldan litið betur út. Meðal gesta í teitinu var kærasti fyrirsætunnar, Nikolai von Bismarck, leikkonan Liv Tyler, Edward Enninful, ritstjóri Vogue og fatahönnuðurinn Stella McCartney. Sú síðastnefnda deildi skemmtilegri mynd af sér og Kate, en þær hafa verið vinkonur um árabil.

Instagram Photo

The post Alræmda partípían hætti að drekka og umbreyttist appeared first on DV.

Lumar þú á handriti að barnabók? Handritaskil fyrir Íslensku barnabókaverðlaunin standa nú yfir

$
0
0

Í 31 sinn er nú auglýst eftir handritum til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin.

Stofnað var til Íslensku barnabókaverðlaunanna 1985 í tilefni af sjötugsafmæli rithöfundarins Ármanns Kr. Einarssonar og voru verðlaunin veitt í fyrsta sinn vorið 1986. Að verðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf, IBBY á Íslandi og Forlagið. Fulltrúar þessara aðila skipa dómnefnd, auk tveggja nemenda úr 8. bekk.

Einu sinni á ári er auglýst er eftir handritum til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin og er skilafrestur til 8. febrúar. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Forlagsins.

Íslensku barnabókaverðlaunin hafa verið veitt fyrir eftirtaldar bækur:

Emil og Skundi eftir Guðmund Ólafsson, 1986
Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steinsdóttur, 1987
Fugl í búri eftir Kristínu Loftsdóttur, 1988
Álagadalurinn eftir Heiði Baldursdóttur, 1989
Í pokahorninu eftir Karl Helgason, 1990
Gegnum þyrnigerðið eftir Iðunni Steinsdóttur, 1991
Benjamín dúfa eftir Friðrik Erlingsson, 1992
Brak og brestir eftir Elías Snæland Jónsson, 1993
Röndóttir spóar eftir Guðrúnu H. Eiríksdóttur, 1994
Eplasneplar eftir Þóreyju Friðbjörnsdóttur, 1995
Grillaðir bananar eftir Ingibjörgu Möller og Fríðu Sigurðardóttur, 1996
Margt býr í myrkrinu eftir Þorgrím Þráinsson, 1997
Heljarstökk afturábak eftir Guðmund Ólafsson, 1998
Leikur á borði eftir Ragnheiði Gestsdóttur, 2000
Sjáumst aftur … eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur, 2001
Ferðin til Samiraka eftir Hörpu Jónsdóttur, 2002
Biobörn eftir Yrsu Sigurðardóttur, 2003
Leyndardómur ljónsins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, 2004
Háski og hundakjöt eftir Héðin Svarfdal Björnsson, 2006
Loforðið eftir Hrund Þórsdóttur, 2007
Steindýrin eftir Gunnar Theodór Eggertsson, 2008
Þvílík vika eftir Guðmund Brynjólfsson, 2009
Ertu Guð, afi? eftir Þorgrím Þráinsson, 2010
Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, 2011
Hrafnsauga eftir Kjartan Yngva Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson, 2012
Ótrúleg ævintýri afa eftir Guðna Líndal Benediktsson, 2014
Skuggasaga – Arftakinn eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, 2015
Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkín Beck, 2016
Er ekki allt í lagi með þig? eftir Elísu Jóhannsdóttur, 2017

Stormsker – Fólkið sem fangaði vindinn eftir Birki Blæ Ingólfsson, 2018

Í þrjú skipti var auglýst sérstaklega eftir myndskreyttum handritum og urðu þessi þá hlutskörpust:
Veislan í barnavagninum eftir Herdísi Egilsdóttur og Erlu Sigurðardóttur, 1995
Risinn þjófótti og skyrfjallið eftir Sigrúnu Helgadóttur og Guðrúnu Hannesdóttur, 1996
Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar eftir Margréti Tryggvadóttur og Halldór Baldursson, 2006

The post Lumar þú á handriti að barnabók? Handritaskil fyrir Íslensku barnabókaverðlaunin standa nú yfir appeared first on DV.

Klaustursflokkarnir bæta við sig fylgi

$
0
0

Miðflokkurinn og Flokkur fólksins eru einu flokkarnir sem bæta við sig fylgi í nýrri könnun MMR, fylgi þeirra féll talsvert í kjölfar Klaustursmálsins. Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,2% landsmanna og helst nær óbreytt frá síðustu mælingu sem lauk 11. desember. Samfylkingin mældist með 15,0% fylgi, sem er tæplega tveimur prósentustigum minna en flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Þá minnkaði fylgi Vinstri grænna um rúmlega tvö og hálft prósentustig. Fylgi Miðflokksins jókst um eitt prósentustig og mælist nú 6,9%, það er þó öllu minna en þau nærri 13% sem flokkurinn fékk í síðustu kosningum, en fylgi flokksins hrapaði í kjölfar Klaustursmálsins, en þar heyrðust þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins tala um pólitísk hrossakaup ásamt því að hæðast og baktala ótal einstaklinga og samstarfsmenn á þingi, meðal annars með orðunum „kunta“ og „tík“. Tveir þingmenn Miðflokksins eru í leyfi og tveir þingmenn Flokks fólksins voru reknir úr flokknum.

Fylgi Flokks fólksins jókst um tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingum og mælist nú  6,7%. Í síðustu könnun náði flokkurinn ekki inn manni, hafði fylgið hrunið nokkuð í kjölfar Klaustursmálsins.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 41,1% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 40,3% í síðustu mælingu.

Fylgi Pírata mældist nú 13,8% og mældist 14,4% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 11,7% og mældist 12,5% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,8% og mældist 8,5% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 4,6% samanlagt.

Könnunin var framkvæmd var dagana 4.-14. janúar. 2061 einstaklingur svaraði.

The post Klaustursflokkarnir bæta við sig fylgi appeared first on DV.

Veist þú hvar hundurinn þinn hefur verið?

$
0
0

Tractive er GPS-tæki fyrir gæludýr sem tengist við snjallforrit í snjallsímanum þínum. Þar getur þú rakið ferðir gæludýrsins í rauntíma og fengið upp nákvæma staðsetningu.

Heimilistæki Tractive

Virk rakning

Þú getur séð í rauntíma hvar loðni vinur þinn er þegar það skiptir mestu. Tractive hefur rauntíma rakningu en staðsetningin er uppfærð á 2ja-3ja sekúndu fresti. Það er enginn takmörkun á vegalengd sem tækið getur rakið gæludýrið, svo lengi sem það er staðsett á svæði með símasambandi. Tractive nýtist afar vel þar sem gæludýrið er laust eða hætta á að það sleppi, t.d. í sumarbústaðalandi, í sveit eða þegar haldið er í lengri gönguferðir.

Heimilistæki Tractive

Sýndarrafgirðing

Tractive bíður upp á stillingu fyrir sýndarrafgirðingu sem sendir þér skilaboð um leið og gæludýrið þitt fer út fyrir fyrirfram ákveðið svæði. Þannig getur þú stillt hvaða svæði er öruggt fyrir dýrið og færð tilkynningu þegar hætta er á að gæludýrið sleppi. Þetta er góð lausn fyrir t.d. hunda sem fá að vera lausir í garði eða haga, eða útiketti. Þá er t.d. hægt að stilla sýndarrafgirðingu utan um hverfið og fá tilkynningu ef kötturinn fer út fyrir sín heimkynni.

Heimilistæki Tractive

Staðsetningarsaga

Hefurðu einhverntímann velt því fyrir þér hvar gæludýrin eru þegar þú ert ekki á staðnum? Tractive vörurnar sýna þér ekki einungis hvar gæludýrið er, heldur einnig hvar það hefur nýlega verið. Þannig getur Tractive einnig nýst til að sjá hvar dýrið var staðsett síðast, jafnvel þótt rafhlaðan tæmist á meðan dýrið var úti. Rafhlaðan endist í 2-5 daga eftir notkun tækisins.

 

Vatnsþolið og nánast högghelt

Tractive er stórsniðug vara fyrir þau dýr sem vilja vera utandyra. Tractive er vel varið og vatnshelt. Ef gæludýrið ykkar elskar að vera utandyra og njóta frelsisins þá er Tractive rétta tækið fyrir ykkur. Einföld og smágerð hönnun sem truflar hvorki hreyfingu dýrsins né veldur því óþægindum. Gæludýrið þitt getur þess vegna haldið á vit ævintýranna og þú fylgist áhyggjulaus með í símanum.

Heimilistæki Tractive

Tractive GPS er hentugt á öll dýr yfir 4.5 kg í þyngd, ketti líka og upp í 35 kg þung dýr.

Tækið er á tilboði í Tölvulistanum á útsölunni á aðeins 8.996 kr, fullt verð 9.995 kr.

Heimilistæki Tractive

Tractive passar á flestar ólar sem eru allt að 5mm breidd. Tæki fyrir smærri dýr er væntanlegt í Tölvulistann.

Heimilistæki Tractive

The post Veist þú hvar hundurinn þinn hefur verið? appeared first on DV.

Helgarbaksturinn: Einfaldar og ljúffengar súkkulaðibitamúffur

$
0
0

Það er gaman að gera vel við sig um helgar og nostra við ýmislegt í eldhúsinu, hvort sem það er bakkelsi eða aðrir réttir. Þessar súkkulaðibitamúffur eru virkilega gómsætar og lífga upp á daginn.

Súkkulaðibitamúffur

Hráefni:

2 bollar hveiti
1 tsk. salt
1 tsk. lyftiduft
1/2 tsk. matarsódi
115 g smjör, mjúkt
1/2 bolli sykur
1/4 bolli púðursykur
1 stórt egg
1 tsk. vanilludropar
1 bolli mjólk
1 bolli súkkulaðibitar

Aðferð:

Hitið ofninn í 175°C og takið til múffuform og jafnvel stálform til að setja múffuformin í. Blandið hveiti, salti, lyftidufti og matarsóda saman í skál. Þeytið síðan smjör, sykur og púðursykur saman í annarri skál í nokkrar mínútur. Bætið eggi saman við og þeytið og síðan vanilludropunum. Bætið helmingnum af þurrefnunum saman og síðan helmingnum af mjólkinni. Endurtakið og blandið síðan súkkulaðibitunum varlega saman við með sleif eða sleikju. Deilið deiginu á milli múffuforma og bakið í 23 til 25 mínútur.

The post Helgarbaksturinn: Einfaldar og ljúffengar súkkulaðibitamúffur appeared first on DV.

Solskjær ætlar ekki að feta í fótspor Mourinho: Búinn að finna sér íbúð

$
0
0

Ole Gunnar Solskjær sem stýrir Manchester United fram í maí ætlar ekki að feta í fótspor Jose Mourinho og búa á hóteli.

Mourinho bjó á Lowry hótelinu í tvö og hálft ár í miðborg Manchester, kona hans vildi áfram búa í London og Mourinho vildi ekki búa einn í eigin húsnæði.

Solskjær tók við United í desember þegar Mourinho var rekinn og hefur búið á Lowry hótelinu síðan. Það er að fara að breytast.

,,Ég ennþá á hótelinu en er búinn að finna mér íbúð og verð því ekki lengi í viðbót þarna,“ sagði Solskjær.

,,Ég hef verið að keyra um og finna rétta húsnæðið, ég er með vini hérna og ég er því ekki einn að hanga á hóteli.“

Solskjær gæti fengið starfið til framtíðar en liðið hefur unnið alla sex leikina undir hanst stjórn. ,,Ég hef elskað þetta, ég er spenntur á morgnana að fara til vinnu.“

The post Solskjær ætlar ekki að feta í fótspor Mourinho: Búinn að finna sér íbúð appeared first on DV.

Aaron Ramsey verður næst launahæsti breski knattspyrnumaðurinn

$
0
0

Samkvæmt fréttum hefur Aaron Ramsey miðjumaður Arsenal skrifað undir samning hjá Juventus. Hann er samningslaus næsta sumar og gat því skrifað undir.

Samningurinn tekur gildi í sumar en fullyrt er að Ramsey muni hækka hressilega í launum.

Sagt er að Ramsey muni þéna 300 þúsund pund á viku sem gerir hann að næst launahæsta breska knattspyrnumanninum.

Juventus hefur í gegnum árin verið klókt að sækja sér leikmenn sem eru að renna út af samningi. Ramsey er einn af þeim.

Aðeins Gareth Bale þénar meira af breskum knattspyrnumönnum en Real Madrid borgar honum 350 þúsund pund á viku. Báðir koma frá Wales og munu leika utan Bretlands á næstu leiktíð.

The post Aaron Ramsey verður næst launahæsti breski knattspyrnumaðurinn appeared first on DV.


Grunnskólakennari lagður til hinstu hvílu í kistu með myndum nemenda sinna

$
0
0

Grunnskólakennari sem lést þann 19. desember síðastliðinn eftir stutta en erfiða baráttu við krabbamein var lagður til hinstu hvílu á miðvikudag. Var kennslukonan dáð af fyrrverandi nemendum sínum fyrir gott hjartalag og var kista hennar skreytt myndum sem þau teiknuðu handa henni.

Daginn sem Sue East lést, aðeins fimmtíu og átta ára gömul, hafði hún notað til þess að skrifa nemendum sínum bréf þar sem hún útskýrði veikindi sín og þakkaði þeim fyrir gleði og vináttu.

Í bréfið sem Metro birti skrifaði Sue meðal annars: „Aldrei gleyma því að það er hægt að finna álfaryk í hvaða stöðu sem er, sama hversu erfið hún er.“

Um sjö hundruð ungmenni, foreldrar, fyrrum nemendur og starfsmenn skólans mættu í jarðarför Sue í gær og var kistan umlukin teikningum af álfum, fiðrildum, hjörtum, regnbogum og álfaryki.

Skilaboð nemenda til kennara síns voru meðal annars að hún hafi verið: Uppáhalds kennarinn þeirra, skemmtileg, elskuleg, spennandi, glimmeruð, góð, ástrík, hafi kennt nemendum sínum að trúa á sjálfa sig og dreift álfaryki um allt.

Elsti sonur Sue, John, hélt ræðu um mömmu sína og greindi frá því hversu heppinn þau systkinin hafi verið með móður. Hún hafi ekki bara elskað þau systkinin, heldur öll önnur börn líka.

The post Grunnskólakennari lagður til hinstu hvílu í kistu með myndum nemenda sinna appeared first on DV.

Þórhildur Sunna: „Það er fáránlega auðvelt að fá varnarlausa manneskju nauðungarvistaða á Íslandi“

$
0
0

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir ekkert í íslenskum lögum koma í veg fyrir að valdamiklir menn geti látið nauðungavistað einstaklinga sem saka þá um kynferðisbrot. „Staðreyndin er sú að það er fáránlega auðvelt að fá varnarlausa manneskju nauðungarvistaða á Íslandi,“ segir Þórhildur Sunna í í grein á vef Stundarinnar í dag. Telur hún málflutning Aldísar Schram í garð föður síns, Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, vera trúverðuga. Líkt og DV hefur fjallað um síðustu daga sakar Aldís föður sinn um sifjaspell og að hafa misnotað aðstöðu sína sem sendiherra til að fá lögreglu til að gera aðför að sér.

„Framkoma samfélagsins, stjórnkerfisins og heilbrigðiskerfisins við Aldísi Schram er áfellisdómur yfir réttarríkinu á Íslandi og undirstrikar brýna þörf á víðtækum lagabreytingum til aukinnar verndar þeirra sem vistaðir eru nauðugir á geðdeild,“ segir Þórhildur Sunna. Aldís hefur framvísað vottorði þess efnis að hún sé heil á geði, þvert á fullyrðingar Jóns Baldvins, og vísað í opinber gögn máli sínu til stuðnings:

„Frásögn Aldísar dregur  upp þá mynd að þarna hafi valdamikill maður í samfélaginu í krafti stöðu sinnar getað svipt dóttur sína frelsinu og ærunni. Þetta gat hann án nokkurs viðnáms frá því kerfi sem á að standa vörð um réttindi hennar. Jafnvel með fullu samþykki og aðstoð þessa sama kerfis.“

Þórhildur Sunna segir að frásagnir kvennanna vera átakanlegar og það sé umhugsunarefni hvers vegna það sé ekki staðið með þolendum, en sem betur fer hafi átt sér stað vitundarvakning á undanförum árum. Jafnvel á þeim sjö árum sem eru liðin frá því að Guðrún Harðardóttir birti klámfengnu bréfin frá Jóni Baldvin. Staðan sé þó enn slæm þegar kemur að  réttarvörslu í nauðungarvistunarmálum:

„Staðan í dag er sú að ekkert í íslenskum lögum kemur í veg fyrir að sagan hennar Aldísar endurtaki sig. Í íslenskum lögum er ekkert sem tryggir að valdamiklir menn misnoti ekki stöðu sína og kerfið til þess að læsa þolendur sína og ásakendur inn á geðdeild og draga þannig úr trúverðugleika frásagna þeirra. Því miður er það svo á Íslandi í dag að lagaramminn sem gildir um nauðungarvistanir, hin svokölluðu lögræðislög, er svo veikur að það kæmi ekki á óvart þótt fleiri óhugnanleg dæmi um þetta leyndust í fortíðinni.“

Hér má lesa grein Þórhildar Sunnu í heild sinni. 

The post Þórhildur Sunna: „Það er fáránlega auðvelt að fá varnarlausa manneskju nauðungarvistaða á Íslandi“ appeared first on DV.

Undur veraldar: Saurís er nýjasta æðið

$
0
0

Nú ríður ansi áhugaverður tískustraumur yfir Harajuka-svæðið í Tókíó. Kaffihúsið Sweet XO Good Grief bíður upp á ís sem heitir Unchi-kun, en Unchi-kun er smekklegt nafn yfir saur.

Instagram Photo

Ísinn nefnilega lítur alveg eins út og kúkur, þó að bragðið af honum sé alls ekki tengt nafninu. Ísinn er með súkkulaðibragði og hægt að fá alls kyns skraut á hann og jafnvel fylgihluti eins og eyru og kórónur.

Instagram Photo

Einn skammtur af ísnum kostar rúmlega sjö hundruð krónur en glöggir sjá að saurísinn minnir um margt á saurtjáknið fræga.

Instagram Photo

Þetta er ekki fyrsti staðurinn til að bjóða upp á mat í anda saurs þar sem veitingastaðurinn Modern Toilet í Tævan ber ýmsa rétti fram, svo sem núðlur og ís, í litlum salernisskálum.

The post Undur veraldar: Saurís er nýjasta æðið appeared first on DV.

Útivistarmerkið Fjällräven hugsar út í hvert einasta skref

$
0
0

„Fjällräven setur náttúruna alltaf í fyrsta sæti. Þaðan komum við og þangað ætlum við að fara. Við sigrum ekki fjöllin eða veðrið og temjum ekki árnar. Við förum okkur hægt og stígum ávallt varlega til jarðar.“

 fjällräven

Náttúrunni allt

Útivistarmerkið Fjällräven ættu flestir Íslendingar að þekkja enda vinsælt hjá öllum kynslóðum og vörurnar fallegar, stílhreinar og endingargóðar. Fyrirtækið var stofnað í Örnköldsvik í Svíþjóð árið 1960 af ungum náttúruunnanda að nafni Åke Nordin. Síðan hefur markmið Fjällräven ætíð verið að skapa tímalausa og endingargóða útivistarvöru.

fjällräven

Fjällräven er ekki bara fyrirtæki sem framleiðir og selur töskur og fatnað, heldur er Fjällräven lífsstíll. Helsta markmið Fjällräven er að minnka þau skaðlegu áhrif sem fataframleiðsla hefur á umhverfið og því er hugsað út í hvert einasta skref þegar kemur að framleiðsluferlinu. Einnig eru eigendur Fjällräven meðvitaðir um að allt sem við gerum hefur áhrif á umhverfið. Heimspeki Fjällräven er sú að skilja við náttúruna eins og komið var að henni, eða betur.

fjällräven

Umhverfisvæn efni

Fjällräven velur efnin með endingu í huga, en einnig að þau hafi sem minnst neikvæð áhrif á umhverfið. Fjällräven reynir eftir fremsta megni að nota lífræn efni, en stundum þarf að fara aðrar leiðir. Fyrirtækið er þá sífellt á höttunum eftir nýjum efnum sem framleidd eru með umhverfisvernd að sjónarmiði og rannsóknum á efnunum sem það notar nú þegar og uppfærir efnalista sinn eftir því.

 fjällräven

Endurunnin efni

Þess má geta að Fjällräven notar mikið endurunnin efni, svo sem endurunnið pólíester, endurunna ull og ullarafganga. Til dæmis má nefna að Re-Kånken er búin til úr endurunnu plasti úr ellefu plastflöskum. Efnið er svo litað með Spindye-tækni sem notar talsvert minna magn af vatni, orku og skaðlegum efnum en aðrar litunaraðferðir.

Fjälräven

Dýrindis dúnn

Fjällräven tekur enn fremur þátt í svokölluðu dúnloforði (e. down promise). Allur dúnn sem Fjällräven notar er aukaafurð frá matvælaiðnaðinum auk þess sem hann er fullkomlega rekjanlegur. Fyrirtækið er að sama skapi mjög virkt í að kanna aðstæður fuglanna þaðan sem dúnninn kemur.

 fjällräven

Tímalaus og klassísk hönnun

Hönnun Fjällräven er tímalaus og klassísk sem þýðir einfaldlega að hún fer ekki úr tísku. Ef þú kaupir Fjällräven vöru þá muntu geta notað hana um aldur og ævi. Efnin eru einstaklega slitsterk og endingargóð og flíkin endist töluvert lengur en ef um ódýrara efni væri að ræða. Þetta kemur í veg fyrir að fólk þurfi sífellt að kaupa nýjar flíkur eins og viðgengst í tískubransanum þar sem efni eru oft léleg og endast stutt.

fjällräven

Frægasti bakpoki í heimi

Flestir kannast við Kånken bakpokann, en hann var lausn Åke á bakvandamálum skólakrakka í Svíþjóð. Einföld og falleg hönnun hefur viðhaldið vinsældum pokans frá 1978 og er hann notaður úti um allan heim af fólki af öllum aldri.

fjällräven

Hjá Fjällräven Laugarvegi 67 fæst bakpokinn góði í ýmsum litum og stærðum auk þess sem verslunin býður upp á gott úrval af fatnaði og aukahlutum frá merkinu.

fjällräven

Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook: Fjallravenverslun 

Verslunin er staðsett að Laugavegi 67, 101 Reykjavík

Sími: 519-6055

Opnunartími: Mánudaga til laugardaga frá 10–19 og sunnudaga frá 11–18.

The post Útivistarmerkið Fjällräven hugsar út í hvert einasta skref appeared first on DV.

United tilbúið að tvöfalda launin hjá Rashford

$
0
0

Manchester United er tilbúið að tvöfalda launin hjá Marcus Rashford framherja félagsins. Samkvæmt enskum blöðum.

Rashford er 21 árs gamall en hann á 18 mánuði eftir af samningi sínum. Rashford þénar í dag 75 þúsund pund á viku.

Sagt er að United sé tilbúið að greiða Rashford 150 þúsund pund á viku, tvöföldun á launum.

Rashford hefur skorað sex mörk og lagt upp þrjú í síðustu níu leikjum, félagið vill verðlauna hann.

Rashford hefur slegið í gegn eftir að Ole Gunnar Solskjær tók við og fengið fast sæti sem fremsti maður liðsins.

The post United tilbúið að tvöfalda launin hjá Rashford appeared first on DV.

Viewing all 50663 articles
Browse latest View live