Bandaríska þingkonan Michele Bachmann hefur dregið sig úr kapphlaupinu um að hljóta útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar í landinu. Fyrstu forkosningar flokksins fóru fram í gær en þar sigraði Mitt Romney. Bachmann endaði hinsvegar í sjötta sæti en Iowa er heimaríki þingkonunnar.





