„Þetta er nýtt tilbrigði við gamalt stef,“ segir Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins um skipulagsbreytingar blaðsins sem fela í sér að meirihluti blaðamanna á Allt og sérblaðadeild Fréttablaðsins færist yfir til sölu- og þjónustusviðs 365. Ólafur segir hvorki uppsagnir né launalækkun fylgja breytingunum.
„Það er löng hefð fyrir því að íslenskum dagblöðum fylgi kynningarblöð á vegum samtaka og fyrirtækja,“ segir Ólafur ennfremur en bætir við að með breytingunni verði hefbundið starf blaðamanns og þeirra sem riti efni í kynningarblöðin betur aðgreind . „Skilin hafa hingað til verið mjög skýr. Allavega hafa kynningarblöðin verið vel aðgreind fyrir lesendum og engin tilraun verið gerð til að dulbúa þetta sem ritstjórnarefni. Það hefur hins vegar verið ákveðin klemma fyrir starfsmenn að sinna báðum hlutverkum,“ segir Ólafur aðspurður hvort með breytingunum felist viðurkenning á að hingað til hafi ekki nægjanlega vel verið greint á milli kynningarefnis og ritstjórnarefnis.


