„Ég þarf þá að ræða það við mína samstarfsmenn og yfirmenn en það var ekki í umræðunni hjá okkur í dag,“ sagði Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður Matvælastofnunnar, þegar Helgi Seljan spurði hann í Kastljósinu í kvöld hvort að Matvælastofnun bæri ekki að biðjast afsökunar á því einungis hafi verið greint frá of háu magni af kadmíum þungamálmi í áburði frá Skeljungi, sex mánuðum eftir að niðurstöður lágu fyrir.







