Tónlistarmaðurinn Eddie House úr hljómsveitinni Steed Lords er einnig að gera það gott sem plötusnúður í Los Angeles. Eddie, sem heitir réttu nafni Eðvarð Egilsson, vinnur líka fyrir sér sem fyrirsæta úti í borg englanna en þar hefur hann verið á skrá hjá risa alþjóðlegu módelskrifstofunni Next Management. Hann hefur til að mynda setið fyrir á myndum fyrir gallabuxnarisann Levi's og birst í tímaritinu Man of the Hour.
↧