Líkt og síðustu ár gefur DV út veglegt tekjublað með upplýsingum um tekjur ríflega 2400 Íslendinga sem eru byggðar á greiddu útsvari viðkomandi samkvæmt álagningarskrám Ríkisskattstjóra.
Nína Dögg Filippusdóttir leikkona
695.555 kr. á mánuði
2016 var gott ár fyrir dugnaðarforkinn Nínu Dögg Filippusdóttur, leikkonu og bæjarlistamann Seltjarnarness. Á árinu lauk Nína Dögg við sjónvarpsþáttaröðina Fangar sem hún átti frumkvæðið að ásamt Unni Ösp Stefánsdóttur og sýnd var á RÚV við góðar undirtektir. Nína Dögg lék stórt hlutverk í Ófærð, vakti athygli í leikritinu Óþelló og kvikmyndinni Hjartasteini – en hún hlaut Edduverðlaun fyrir síðastnefnda hlutverkið. Laun Nínu Daggar fyrir vinnuna hljóðuðu upp á tæpar 700 þúsund krónur á mánuði.
↧
Gott ár í leiklistinni
↧