Quantcast
Channel: DV
Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663

Kristján leitar að syni sínum: Hefur þú séð Björn Heiðar?

$
0
0

Kristján Jóhann Matthíasson lýsir eftir syni sínum, Birni Heiðari, sem er týndur. Hann óskar eftir aðstoð almennings við leitina en að hans sögn hóf lögreglan leit að honum í gær. Björn Heiðar Kristjánsson er 16 ára og 162 sm að hæð.
Kristján segir í samtali við DV að hann vonist til að finna Björn Heiðar fljótt. Kristján sá son sinn síðast í gærmorgun þegar hann skutlaði honum í vinnuna. „Við erum búinn að þrengja hringinn. Hann er á Völlunum í Hafnarfirði,“ segir Kristján Jóhann.
Kristján biður þá sem vita um ferðir Björns Heiðar að hafa samband við lögreglu.
Uppfært kl. 17:30
Björn Heiðar er fundinn heill á húfi.












Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663