Quantcast
Channel: DV
Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663

Fékk loksins tækifæri með Liverpool í kvöld – Mikið gagnrýndur

$
0
0

Simon Mignolet fékk tækifæri hjá Liverpool í kvöld er liðið mætti Wolves í enska bikarnum.

Mignolet hefur þurft að sætta sig við bekkjarsetu á þessu tímabili sem og á síðustu leiktíð.

Loris Karius var markvörður númer eitt á síðasta tímabili en Alisson Becker er aðalmarkvörðurinn í dag.

Mignolet fékk þó sénsinn gegn Wolves í kvöld en Liverpool tapaði leiknum 2-1 á Molineaux.

Stuðningsmenn Liverpool voru ósáttir við Mignolet í kvöld og kenndu honum að hluta til um bæði mörk Wolves.

Í fyrra markinu var talað um að Mignolet hafi ekki mætt út nógu snemma og í því síðara er hann gagnrýndur fyrir að verja ekki langskot Raul Jimenez.

The post Fékk loksins tækifæri með Liverpool í kvöld – Mikið gagnrýndur appeared first on DV.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663

Latest Images