Hrönn Bjarnadóttir er þrjátíu og þriggja ára gömul húsmóðir í vesturbæ Kópavogs. Hún á tveggja ára gamla dóttir, hana Emblu Ýr, starfar sem fasteignasali og eyðir frítíma sínum í að blogga á síðu sinni Fagurkerar. Undanfarna mánuði hefur Hrönn vakið mikla lukku á samfélagsmiðlum sínum fyrir ótrúlega skipulagshæfni sína, eldamennsku, skreytingar og virkilega vegleg veisluhöld.
Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum sem fylgst hefur með lífi Hrannar og fjölskyldu undanfarna mánuði að metnaður hennar fyrir því að baka, skreyta og halda veislur er á einhverju allt öðru plani heldur en hjá flestum. Síðasta sumar gengu þau Hrönn og Sæþór að eiga hvort annað og var brúðkaupsveisla þeirra líklega ein sú best skipulagða veisla sem haldin hefur verið í langan tíma. Í henni komu fram fjöldin allur af tónlistarfólki, boðið var upp á marg rétta veislumat og passað var upp á þægindi og hreinlæti gesta. Meðal annars voru inniskór, naglaklippur, saumnál, tvinni, ilmvatn, förðunarvörur, verkjalyf, eyrnapinnar og dömubindi á boðstólnum fyrir hvern og einn gest ef eitthvað skildi koma upp á í miðri veislu. Þá fengu allir gestir veglegt nesti, drykki og verkjalyfjakokteil fyrir morguninn eftir partýið.

Blaðakona velti því fyrir sér hvernig í ósköpunum sé hægt að vera jafn skipulagður og metnaðargjarn og Hrönn er samhliða því að sinna almennu fjölskyldulífi og starfi. Hvaðan hún fái þessa ótrúlegu orku og hvort hún sé með einhvern samning um auka klukkustundir í sólarhringnum sem við hin vitum ekki af.
„Ég bara elska að halda veislur. Það er mitt stærsta áhugamál og hefur verið það alveg frá því ég man eftir mér. Ég man eftir því að hafa verið mjög metaðarfull í föndri, skreytingum og skipulagi á afmælum alveg frá því að ég var bara svona 4-5 ára gömul. Þá voru öll boðskort og skreytingar heimagerðar af mér og öll fjölskyldan virkjuð í allskonar vitleysu,“ segir Hrönn og hlær.

„Eitt skiptið skipaði ég pabba að redda risastórum pappakassa og koma með hann heim. Hann hlýddi að sjálfsögðu og kom með kassann heim. Ég tróð pabba svo inn í kassann á afmælinu og svo fengu allir veiðistöng og áttu að veiða nammipoka upp úr kassanum sem pabbi hengdi á. Ég byrjaði yfirleitt mjög fljótlega eftir afmælið mitt að skipuleggja það næsta. Alltaf gott að vera tímanlega í þessu,“ segir hún og glottir.
Þegar Hrönn flutti úr foreldrahúsum jók áhugi hennar á eldamennsku og bakstri svo um munaði og segist henni hvergi líða betur heldur en í eldhúsinu.
„Fyrir mér er það alveg therapeutic að taka nokkra tíma í eldhúsinu alveg í mínum eigin heimi að nostra við eitthvað fyrir veislu. Hvort sem það er bakstur eða eldamennska. Svo finnst mér líka rosalega gaman að þrífa og taka til. Mér finnst ekkert skemmgilegra en að taka í gegn alla skápa og henda og skipuleggja upp á nýtt með allskonar skipulagskössum og boxum og merkilvélinni minni góðu.“
Hefur þú alltaf verið svona skipulögð?
„Já ég hef reyndar alltaf verið svona skipulögð og þegar ég var lítil var ég alltaf að raða og flokka og skipuleggja dótið mitt. Þessa hegðun er ég strax farin að sjá hjá ára dóttur minni sem hefur mjög gaman af því að raða dótinu sínu í allskonar raðir og hópa….greyið barnið! Skipulagsæðið komst svo á nýtt plan þegar ég flutti að heiman og fékk heilt heimili útaf fyrir mig til að skipuleggja. Nú hef ég búið á 3 stöðum síðan ég flutti að heiman og skipulagsæðið vex með hverju húsinu. Þegar við Sæþór maðurinn minn fluttum síðast í húsið okkar á Kársnesinu kláraði ég held ég upp lagerinn af Skubb skipulagskössum í IKEA. Ég vil bara ekki vita hvað ég er búin að eyða miklum pening í skipulagskassa, box og hirslur úr IKEA.“
Hefur þú einhverntímann lent í einhverju „skelfilegu“ þegar þú hefur haldið veislu?
„Sko ég hef nú verið heppin í gegnum tíðina og þetta hefur yfirleitt gengið nokkuð stórslysalaust fyrir sig. En þegar ég er með stórar veislur er ég yfirleitt að lenda í því vikuna fyrir að dreyma endalausar martraðir þar sem allskonar hlutir eru að klúðrast. Yfirleitt eru það bara einhver smáatriði sem eru að fara úrskeiðis og oftar en ekki er þetta eitthvað sem enginn tekur eftir nema ég. Ég er mjög gjörn á það að elda alltof mikið af mat og það eru næstum alltaf svaka afgangar hjá mér svo ég hef ekki lent í því að maturinn klárist en þetta reddast samt alltaf og ef allt er komið í klandur er hægt að panta pizzu.“
Hvað hefur þú haldið margar svona stórar veislur?
„Ég hef alveg haldið nokkuð margar stórar veislur, bæði hjálpað öðrum með sínar veislur og svo haldið stórar veislur sjálf. Við Sæþór vorum með ótrúlega flotta veislu þegar hann var 30 ára og ég sá um allan matinn fyrir það partý sem var 100 manna veisla. Brúðkaupið mitt í fyrra var auðvitað stærsta veisla sem ég hef haldið en við vorum með um 160 gesti. Auðvitað sá ég ekki um matinn þar en allt annað var á minni könnu og þetta var alveg ótrúlega mikil vinna. En á sama tíma alveg sjúklega skemmtilegt og æðislegt.“
Er hægt að mæta til þín í snakk og ídífu eða ferðu alltaf alla leið með boð?
„Ef þú droppar inn skyndilega er ég ekkert með 3 hnallþórur og rúllutertubrauð í ísskápnum alveg á standby en ef ég er að bjóða fólki heim á ég mjög erfitt með að fara ekki alla leið í hvert skipti.“
Finnst þér ekkert streituvaldandi að halda svona stóra veislu?
„Jú það er auðvitað frekar streituvaldandi en á sama tíma svo mikið skemmtilegt og mér líður best þegar ég er með allskonar að gera. En það er kannski betra að spyrja Sæþór um þetta… það er hann sem þarf að díla við mig í einhverju stresskasti með smjörkrem upp að eyrum og glimmer í hárinu. En jújú þetta tekur auðvitað svakalega mikinn tíma og er oft erfitt þegar maður er með lítið barn og í fullri vinnu en þetta er á sama tíma svo skemmtilegt. Ég verð þó að viðurkenna að ég var eiginlega bara ansi fegin þegar brúðkaupið okkar var búið. Þetta var búið að heltaka lífið okkar í marga mánuði og allur frítími fór í að klippa niður silkiborða, glimmera freyðivínsflöskur, baka makkarónur og búa til blómaskreytingar. Þetta var algjörlega allt þess virði á daginn sjálfan en þetta er eitthvað sem ég þarf ekkert endilega að gera aftur næsta sumar og finnst fínt að vera bara boðin í brúðkaup og þurfa ekki að halda það. EN vá hvað þetta var samt ótrúlega skemmtilegt ferli, að halda eitt stykki brúðkaup og maður lærði alveg ótrúlega mikið.“
Hvað myndir þú segja að þú sért lengi að undirbúa eina veislu, þá til dæmis eins og tveggja ára afmæli Emblu fyrir stuttu?
„Sko það er aðeins misjafnt eftir því hvernig veisla þetta er en aldrei minna en viku myndi ég segja. Ég var auðvitað farin að spá í þema fyrir tveggja ára afmælið um leið og eins árs afmælið var búið og byrjaði að kaupa skraut og svona í októberlok. En bakstur og skreytingar og svona tók alveg rúma viku. En ég á líka ótrúlega góða vini sem eru alltaf til í að koma og hjálpa mér í þessari vitleysu.“
Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Og eftirréttur?
„Úff mér finnst þetta alltaf svo erfið spurning. Sko mér finnst held ég skemmtilegast að elda allskonar smárétti og eins finnst mér ofsalega skemmtilegt að hafa matarboð þar sem boðið er uppá allskonar smárétti og osta – þá er hægt að sitja lengi við matarborðið og gæða sér á matnum og spjalla. Gott rauðvín með færir þetta á enn hærra plan. Varðandi baksturinn þá finnst mér ofsalega gaman að gera risastórar og flottar kökur á mörgum hæðum og með allskonar skreytingum- það er svo gaman að sjá kökuna verða til og pæla og plana hvernig hún á að líta út og fullkomna lúkkið svo í endann. En uppáhalds eftirrétturinn minn er þó lemon meringue ostakaka sem mér finnst algjör draumur og vera rosalega gott samspil af sætu og súru.“
Er eiginmaðurinn jafn fær í eldhúsinu eða sér hann um uppvaskið?
„Eigum við ekki bara að segja það að hann sé afar fær í uppvaskinu.“
Hvernig ferð þú að þessu? Sefur þú aldrei?
„Vikuna fyrir svona veislu sef ég ekkert sérstaklega mikið nei. Ég er líka svo uppvíruð og spennt og svo margir hlutir á to-do listanum að ég hef oft fengið þessa tilfinningu þegar allir eru komnir uppí rúm og sofnaðir að mig langi bara að hoppa aftur niður og halda áfram alla nóttina að vinna.“
Bakar þú frá grunni og skreytir sjálf eða kaupir tilbúið?
„Flestar kökur og krem baka ég frá grunni þó ég notist nú alveg oft við hana Betty Crocker vinkonu mína í tímaþröng. Það er nefnilega hægt að komast ansi langt með brownie mixi frá betty með viðbættu karamellukurli og karamellusósu. En eftir að ég átti barn og tíminn er orðinn aðeins naumari er ég mun opnari fyrir allskonar tilbúnum valkostum sem stytta mér leið og reyni þá bara að blanda saman tilbúnu og heimagerðu.“
Á maður einhvern tíman nóg af skrauti?
„NEI!!“
Hvað heldur þú að þú eigir mikið af skrauti fyrir veislur?
„Ó mæ ég held ég vilji ekki vita það. En ég er alvarlega að skoða það þessa dagana hvort ég þurfi ekki að fara að leigja mér litla geymslu úti í bæ fyrir allt þetta drasl mitt. Ég á örugglega yfir 1000L af jólaskrauti, halloween skrauti, morðgátuskrauti, hawaian skrauti, afmælisskrauti, páskaskrauti og allskonar þemaskrauti ofan á allt skrautið úr brúðkaupinu sem fyllir nánast heilt herbergi heima hjá mér sem gengur undir nafninu Brúðkaupsherbergið þessa dagana (endilega hafið samband ef þið viljið leigja brúðkaupsskraut!) Eins á ég allskonar partýgræjur sem taka ekki lítið pláss- kokteilgosbrunn, candyfloss vél, poppvél, risa lukkuhjól, súkkulaðigosbrunn….“
Hvað gerir þú svo við allt saman eftir veislurnar/partýin?
„Ég er alveg dugleg að henda því sem er illa farið eða ónýtt en allt annað geymi ég og það er ótrúlegt hvað það er mikið af skrautinu ég get nýtt aftur og aftur. Eins er ég mjög dugleg að lána allt þetta skraut til vina og vandamanna og það er eiginlega alltaf einhver með eitthvað í láni.“
Hvað er það skemmtilegasta við að halda veislur?
„Klárlega undirbúningurinn – að velja þemað, veitingar og skreytingar.“
En leiðinlegasta?
„Þetta er nú eiginlega allt skemmtilegt. Ætli tímaskortur í undirbúningi sé ekki það leiðinlegasta af því þá fer maður að stressast upp og við mikið stress fer gleðin oft minnkandi. En þá er bara að byrja tímanlega og skipuleggja sig vel. Að leyfa barninu að fara í heimsókn til ömmu og afa í nokkra klukkutíma meðan maður er að undirbúa er líka hrikalega góð hugmynd en manni verður einhvernveginn miklu meira úr verki þegar maður er einn og þarf ekki að hafa áhyggjur af litlum skæruliða.“
Hefur þú klúðrað köku?
Jájájá algjörlega!!! En gott smjörkrem getur gert ljótustu kökubotna bara ansi hreint glæsilega. Ég held ég hafi samt aldrei hent jafn mikið af kökum og þegar ég var að læra að baka franskar makkarónur og var að prufa mig áfram með hráefni, aðferðir og ofnhita.. En ég er núna komin með bulletproof uppskrift svo þetta var allt þess virði.“
Langar þig aldrei að fara bara út í Costco og græja veisluna í einum grænum?
„Æii nei, eiginlega ekki og það er aðalega af því mér finnst þetta svo ótrúlega skemmtilegt. Finnst samt snilld að það sé hægt að halda flotta veislu með lítill fyrirhöfn og ég notfæri mér Costco og Stórkaup mikið þegar ég er með stórar veislur og finnst það algjör snilld.“
Hvað tókst þú þér langan tíma til þess að skipuleggja brúðkaupið?
„Úff! Við trúlofuðum okkur tæpu ári fyrir brúðkaupið og ég byrjaði strax á fullu að panta stóru hlutina – sal, prest, kirkju og tónlistarfólk. Eins byrjaði ég strax að skoða mig um á pinterest og netinu og finna út hvaða þema og skreytingar ég vildi hafa. Ég var alveg í miklum undirbúning í svona 8 mánuði og síðustu 3 mánuðirnir fóru í ekki neitt annað en brúðkaupsvinnu.“
Gerðir þú eitthvað sjálf eða pantaðir þú þjónustu?
„Ég sá sjálf um allt sætmeti, bakaði brúðartertuna, franskar makkarónur og cakepops. Matinn pöntuðum við en við vorum með smárétti með fordrykknum og svo forrétt og aðalrétt inni í sal.
„Ég pantaði sjálf allar skreytingar og skreytingarefni erlendis frá og á tímabili var ég daglegur gestur á pósthúsinu og gekk undir nafninu – konan með mörgu pakkana – af því ég var alltaf að sækja svo mikið í einu! Ég sá svo um allar skreytingar í veislunni með hjálp yndislegra vina og fjölskyldu. Það voru ekki ófáar helgar síðasta sumar sem fóru í að klippa niður tjull og silkiborða, glimmera freyðivínsflöskur, skreyta vínglös og allskonar vitleysu og í þessi skemmtilegu verkefni fékk ég yndislegu vini mína og frábæru fjölskylduna mína þannig að það voru mörg fórnarlömb í þessari skipulagningu.“
Vissi Sæþór alveg hvað hann var að fara út í, tók hann þátt í skipulagningunni?
„Sæþór þekkir nú alveg sína konu og þetta er ekki fyrsta veislan sem ég held svo ég hugsa nú að hann hafi alveg nokkurn veginn gert sér grein fyrir hvurslags fíaskó þetta yrði. En ég held að hann hafi nú samt verið orðin pínu bugaður í lokin þegar húsið okkar var búið að vera undirlagt af póstsendingum, gerviblómum, tjulli, silkiborðum og glimmeri og endalausum verkefnum. Það var allavega kærkomin hvíld að fara beint eftir brúðkaupið til Hawaii í 12 daga.“
Hefur hann eitthvað um veislurnar þínar að segja? Segir hann aldrei „hingað og ekki lengra.“
„Sko hann þykist alltaf vera þvílíkt á móti þessu rugli en svo þegar ég næ honum í gírinn þá er hann sko fullur af allskonar hugmyndum og er mjög liðtækur í skreytinum. Hann er t.d. orðinn aðal skreytarinn fyrir Halloween partíið okkar og sér alveg um að fylla húsið af kóngulóarvef og beinagrindum. Hann veit líka hvað ég hef ótrúlega gaman að þessu og er þess vegna alveg tilbúin að taka þátt í þessu með mér.“
Hefur þú góð ráð fyrir lesendur sem eru að fara að skipuleggja veislu?
„Besta ráðið sem ég get gefið varðandi veislur, brúðkaup og bakstur er að byrja nógu tímanlega – það tekur ALLT einhvernveginn aðeins lengri tíma en maður áætlaði og það er svo ótrúlega gott að vera ekki í tímastressi og geta frekar notið sín betur í undirbúning – undirbúningurinn er nefnilega oft alls ekki minna skemmtilegur en viðburðurinn sjálfur.“
Fyrir áhugasama skipulags-, baksturs-, og þrifafólk er hægt að fylgjast með Hrönn á Snapchat: hronnbjarna