Keanu Reeves, 55 ára, hefur ekki verið í alvarlegu sambandi í áratug og hefur aldrei verið innilegur með konu á rauða dreglinum á öllum 35 ára leikaraferli sínum. En það breyttist allt síðustu helgi þegar hann og listakonan Alexandra Grant, 46 ára, mættu saman á rauða dregillinn fyrir LACMA lista- og kvikmyndahátíðina.
Sjá einnig: 10 ástæður sem sanna að Keanu Reeves er einn mesti snillingur heims
Keanu og Alexandra héldust í hendur og horfðu innilega á hvort annað á meðan þau brostu fyrir myndavélarnar. Daily Mail greinir frá.
Keanu hefur áður verið tengdur við Söndru Bullock og Amanda De Cadenet. Árið 2008 kynntist hann Jennifer Syme. Ári síðar gekk hún með fyrsta barn þeirra sem fæddist andvana. Einu og hálfu ári seinna lést Jennifer í bílslysi, aðeins 28 ára gömul.
Reeves hefur sagt að í kjölfar þessara atburða hefur hann forðast alvarleg sambönd og barneignir, eða allavega hingað til. Sjáðu myndirnar af nýjasta stjörnuparinu hér að neðan.