Quantcast
Channel: DV
Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663

Nú verður bráðum ógerlegt að slóra á klósettinu í vinnunni

$
0
0

Þeir starfsmenn sem fara á klósettið í vinnunni í von um ákveðna afslöppun þegar náttúran kallar eiga ekki von á góðu. Fyrirtæki eitt í Bretlandi hefur þróað klósett sem gerir það að verkum að nánast ógjörningur er að sitja á því mjög lengi.

Klósettið sem um ræðir er hallandi sem þýðir að álagið á fótleggina líkist því sem gerist þegar farið er í hnébeygju. Hallinn er ekki ýkja mikill, þrettán gráður, en það er nóg til þess að meðalmaðurinn fer að þreytast í fótunum eftir um það bil fimm mínútur.

Fyrirtækið býður einnig upp á aðrar gerðir af klósettum sem eru einnig hallandi, allt frá fimm gráðum og upp í þrjátíu og fimm gráður. Fyrirtækið telur að þessi hönnun muni draga úr klósetthangsi starfsmanna um þriðjung eða svo. Margir freista þess að kíkja í símann til að drepa tímann en nú gæti það hangs verið úr sögunni.

Fyrirtækið kveðst hafa látið framkvæma könnun meðal starfsmanna þar sem fram kom að þeir eyði 25 prósentum lengri tíma á klósettinu en þeir raunverulega þurfa. Samanlagður kostnaður fyrirtækja vegna þessa er verulegur enda safnast þegar saman kemur.

Gagnrýnendur hafa þó klórað sér í kollinum yfir þróuninni og spurt hvað fyrirtæki geri þegar einstaklingar eru slæmir í skrokknum, til dæmis í hnjám.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663