Næsta ár verður líklega síðasta ár Jóhönnu Sigurðardóttur í formannsstól Samfylkingarinnar en afar ólíklegt verður að teljast að hún leiði flokkinn í næstu kosningum. Innan Samfylkingarinnar tala fáir fyrir áframhaldandi formannssetu hennar að kjörtímabilinu loknu. Einn viðmælandi DV gekk svo langt að segja „ómanneskjulegt“ að leggja meira á Jóhönnu. „Samfylkingarfólk ætti að leggja sig fram við að létta henni störfin en svo virðist ekki vera. Það vita það allir innan flokksins að hún er orðin örþreytt. Viðbrögð Jóhönnu við því eru að draga sig æ meira inn í skel. Hún talar lítið við samstarfsmenn og er enginn málflytjandi ríkisstjórnarinnar,“ sagði einn viðmælandi DV um stöðu Jóhönnu.










