Geir Ólafsson tónlistarmaður hyggst leggja fram aðra kæru til lögreglunnar vegna níðskrifa á netinu. DV greindi frá því á föstudag að Geir hefði lagt fram kæru á hendur einstaklingi sem skrifaði athugasemd við myndband Geirs og hljómsveitarinnar Furstanna á vefnum YouTube. Annað slíkt dæmi hefur komið upp en í báðum tilfellum er Geir kallaður barnaperri.











