Það kostaði bandaríska skattgreiðendur hátt í 100 þúsund dali, eða jafnvirði um 11,6 milljóna króna, þegar starfsfólk Mitt Romneys, fyrrverandi ríkisstjóra í Massachusetts í Bandaríkjunum, gerðu tilraun til að eyða öllum rafrænum gögnum frá ríkisstjórnartíma hans. Gögnunum var eytt stuttu áður en hann hóf baráttu fyrir útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar í landinu árið 2008.










