Óvissan í kringum gosstöðvarnar í Holuhrauni er óþægileg, segir deildarstjóri Almannavarna. Líkt og greint var frá er allt sem bendir til þess að gosinu þar sé lokið, en hættuástand við gosstöðvarnar er þrátt fyrir það töluvert. „Það er töluvert mikið og jafnvel meira að sumu leyti heldur en verið hefur næst gosstöðvunum. Nú er hraunið sem sagt að afgasast og þá eru að koma gastegundir sem eru mjög hættulegar og gasgrímur verja þig ekki. Kolmónoxið og koldíoxíð. Og af því að það er ekki lengur gos í gangi þá er ekki eins mikið hitauppstreymi frá staðnum þannig að þetta leggst meira á flæðurnar í kringum hraunið heldur en það gerði áður þannig að einhvern tímann verður þetta varasamari staður heldur en var jafnvel,“ segir Víðir Reynisson [í samtali við RÚV](http://www.ruv.is/frett/haettan-a-gosstad-jafnvel-meiri-en-adur). Hann segir að gastegundirnar við hraunið séu mjög hættulegar og það þurfi súrefniskúta til að vera nærri þeim. Ferðamenn fá því ekki að fara nálægt svæðinu í bráð, en eftir á að endurmeta stöðuna.
↧