Andrea Ævarsdóttir og Sigríður Björk Einarsdóttir eru báðar upplýsingafræðingar og mæður einhverfra drengja. Þær eru í senn reiðar og gáttaðar á þeirri umræðu sem skapast hefur í þjóðfélaginu um meint tengsl einhverfu og bólusetninga, og telja hana á miklum villigötum. Þær segja skoðanir fólks oft byggðar á fáfræði og því að fólk kann ekki að lesa úr upplýsingum.
↧