Quantcast
Channel: DV
Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663

Laufey telur sára kvikmyndaframleiðendur leka í Fréttablaðið: Jón Viðar Ósáttur: „Ófærð 1 var rusl“

$
0
0

Ófærð 2 sem framleitt er af Baltasar Kormák fékk vilyrði fyrir 60 milljón króna styrk frá Kvikmyndasjóði en það án þess að búið væri að skila inn handriti af öllum þáttunum. Lög Kvikmyndasjóðs eru skýr en í reglugerð sjóðsins stendur að það þurfi að liggja fyrir fullbúið handrit til að hljóta styrk. Frá þessu greinir Fréttablaðið í morgun. Þar kemur einnig fram að aðrir framleiðendur séu ósáttir og séu að skoða lagalega stöðu sína sem beri að gæta að jafnræðisreglu.
Laufey Guðjónsdóttir starfandi forstöðumaður Kvikmyndastöðvar Íslands telur ekki að reglur hafi verið brotnar. Laufey heldur fram að allir dramatískir punktar í seríunni hafi legið fyrir og það dugi til að styrkja þá sem standa að baki þáttunum. Laufey telur að sárir kvikmyndaframleiðendur hafi ákveðið að reyna koma höggi á kvikmyndamiðstöðina með því að hafa samband við Fréttablaðið.
„Við erum alltaf að meta verkefni sem er talið hæfast hverju sinni. Það eru vonsviknir aðilar sem fengu ekki styrki í ár sem hafa væntanlega komið að þessum ábendingum. Þetta er í rauninni mjög stór sería og sextíu milljónir eru hlutfallslega lágur styrkur. Við fengum þannig gögn að við töldum að það væri hægt að styrkja þetta.“
Jón Viðar tjáir sig um málið í Facebook-hópnum Menningarátökin. Hann segir:
„Það er ekki sama Baltasar og séra Baltasar! Og hvað er eitt ræfils handrit á milli vina? Geta þessir lúserar ekki skilið það?! Auðvitað er höfuðatriðið að "dramatískir hápunktar" liggi fyrir, eins og forstöðukona Kvikmyndasjóðs kemst svo greindarlega að orði. - Nei, gott fólk, svo allri kaldhæðni sé sleppt, þá er þetta reginhneyksli og full ástæða til að hvetja kvikmyndaframleiðendur að sækja málið eftir réttum leiðum. Og við skulum vona að þeir láti ekki ótta við veldi þeirra sem þarna eiga hlut að máli, draga úr sér kjarkinn!!“
Jón Viðar bætir við:
„Ófærð 1 var rusl (þó að það sé svo sem aukaatriði í þessu samhengi) og nú á að moka peningum í framhaldið þó að það sé meira og minna óskrifað!! Halda menn etv að það séu bara banksterar og pólitíkusar sem vaða hér spillingarforaðið upp fyrir hné?“
Jón Viðar fær ekki miklar undirtektir við gagnrýni sinni. Arnar Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður tjáir sig um innlegg Jóns Viðars og kveðst ekki gera sér fyllilega grein fyrir alvarleika málsins en er hissa á þessu svari Laufeyjar: „Það eru vonsviknir aðilar sem fengu ekki styrki í ár sem hafa væntanlega komið að þessum ábendingum.“
Arnar segir:
„Þetta finnst mér ekki sérstaklega faglegt. Annaðhvort eru ábendingarnar réttmætar eða ekki. Að afgreiða gagnrýni með einhverjum meintum hvötum þeirra sem með hana koma virkar lágkúrulegt.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663