Quantcast
Channel: DV
Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663

Svavar Knútur: „Fólk frekar til í að drulla yfir feitar konur“

$
0
0

Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur tjáði sig um fitufordóma í Facebook-færslu í dag sem fengið hefur mikla athygli. Þar minnist hann sérstaklega á það hvernig er talað til feitra kvenna. Hann segir: „Einhvern veginn sýnist mér fólk vera miklu meira til í að drulla yfir feitar konur en feita karla. Sérstaklega ef þær dirfast að opna á sér kjaftinn og kalla eftir því að fólk slaki á dólgshættinum og dómhörkunni.“
Hann spyr einnig hvort fólkið sem leyfir sér að tala svona geri það einnig þegar um er að ræða reykingafólk eða fólk sem drekkur áfengi. Hann tekur dæmi:
„Hey, þú ert reykingamanneskja, veistu að þú færð krabbamein. Þú ert ógeðsleg/ur. Og hefur þetta fyrir börnunum þínum. Oj! Ef börnin mín reyktu, þá fyndist mér þau ógeðsleg. Af hverju ertu svona pirruð? Ég er bara að segja staðreyndir hérna!".”
Svavar segir slíkt fólk meinfýsið, andstyggilegt og telji sig yfir aðra hafna. Líkamsvirðing snúist um það að láta fólk í friði. Hvort sem það er feitt eða magurt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 50663