„Hann verður ekki í loftinu á meðan að þetta alvarlega mál er til úrvinslu,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365 fjölmiðlasamsteypunnar um það hvort Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz verði gestur Auðuns Blöndal í útvarpsþættinum FM95blö á föstudagseftirmiðdögum. Ari sagði á föstudaginn að ótímabært væri að segja til um það hvernig færi með mál Egils innan 365, en segir í samtali við DV í dag að sú ákvörðun hafi strax verið tekin.











