Steve Easterbrook, forstjóri McDonald’s, hefur verið rekinn úr starfi eftir að upp komst að hann hafði átt í ástarsambandi við starfsmann fyrirtækisins. Steve var yfirmaður konunnar og samkvæmt reglum McDonald’s er slíkt bannað og brottrekstrarsök. Steve er Breti sem hafði unnið fyrir McDonald’s í aldarfjórðung og klifið metorðastigann hægt og rólega. Hann var mikils metinn Lesa meira
Bayern Munchen í Þýskalandi er búið að reka knattspyrnustjóra sinn Niko Kovac. Þetta staðfesti félagið í gær. Bayern tapaði 5-1 í Bundesligunni um helgina gegn Eintracht Frankfurt sem er fyrrum félag Króatans. Kovac er 48 ára gamall en hann er fyrrum leikmaður Bayern og tók við liðinu í fyrra. Honum tókst að vinna deildina rétt Lesa meira
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur konu fyrir líkamsárás í opinberu starfi og brot gegn barnaverndarlögum. Konunni er gefið að sök að hafa veist að fimm ára dreng í starfi sínu sem þroskaþjálfi á leikskóla í Kópavogi. Mbl.is greinir frá þessu en þar segir að konan sé ákærð fyrir að hafa, í október 2017, Lesa meira
„Það má segja að ég hafi náð botninum Þorláksmessunótt árið 2010, þegar mér var nauðgað í annað skiptið,“ segir Móeiður Sif Skúladóttir.
Móeiður glímdi við skelfilega átröskun frá unglingsaldri. Hún var aðeins 40 kíló, og 168 cm á hæð, þegar hún var sem veikust. Eftir að hafa verið nauðgað í annað skipti fékk hún áfallastreituröskun og versnaði ástand hennar verulega.
Hún segir frá afleiðingum nauðgunarinnar, átröskuninni og leiðinni að batanum sem hún er ævinlega þakklát fyrir í einlægu viðtali við DV.
Bráðamóttaka á aðfangadag
„Ég eyddi aðfangadag með mömmu upp á bráðamóttöku Landspítalans. Ég ákvað að kæra í þetta skiptið,“ segir hún.
Málið var tekið fyrir hjá Héraðsdómi og síðan Hæstarétti þar sem gerandinn var sýknaður. Í kjölfarið fékk Móeiður tíma hjá sálfræðingi til að vinna í áfallastreituröskuninni sem hún fékk.
„En eftir nokkra tíma gafst ég upp. Ég var ekki tilbúin, þetta var bara of erfitt,“ segir hún.
Móeiður er 20 kílóum þyngri í dag og mikið heilbrigðari.
Vaknaði öskrandi
„Í langan tíma vaknaði ég öskrandi á nóttunni. Ég var hrædd ef að ókunnugur maður settist of nálægt mér eða einfaldlega horfði of mikið á mig. Ég var alltaf á tánum og tilbúin að einhver myndi ráðast á mig,“ segir Móeiður.
Á þessum tíma var Móeiður 22 ára og hafði glímt við átröskun frá því að hún var 15 ára. Hún var einnig með þunglyndi og kvíðaröskun.
„Þegar ég var veikust var ég aðeins 40 kíló. Ég er 168 cm á hæð. Mér fannst ég svo feit og ljót. Sjálfshatrið var algjört. Allt það slæma sem kom fyrir mig var mér að kenna og ég átti það allt skilið. Mér fannst ég ekki eiga neitt gott skilið og fannst ég vera svo ógeðsleg að innan og utan,“ segir Móeiður.
Móeiður var aðeins 40 kíló þegar hún var sem veikust.
„Það var ekki fyrr en ég fer í meðferð hjá Hvítabandinu sem ég fékk alvöru hjálp. Þar starfar yndislegt fólk sem að bókstaflega bjargaði mér. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þeirra hjálp. Þetta var það erfiðasta sem ég hef gert á ævinni en ég vissi að þetta var eitthvað sem að ég þurfti nauðsynlega að gera. Mín meðferð var tvískipt, fyrst við anorexíu og búlimíu og svo við þunglyndi og áfallastreitu. Þarna kynnist ég núvitund, hugleiðslu og yoga, sem átti eftir að hjálpa mér ótrúlega mikið.“
Móeiður hefur fundið sig í jóga og CrossFit.
Fann sig í Yoga Shala
„Eftir sirka 2 ár hjá Hvítabandinu fór ég að mæta í Yoga Shala og fann mig algjörlega þar. Starfsfólkið þar var svo hlýtt og indælt og mér fannst ég vera svo velkomin. Þarna eru mjög fjölbreyttir og góðir tímar, allt frá hugleiðslu yfir í hot yoga,“ segir Móeiður.
„Svo fór ég að mæta meira í ræktina og smám saman finn ég hvað það gerir mér gott, samhliða batanum. Ég var loksins farin að borða eðlilega og varð smám saman orkumeiri og ákvað svo að breyta yfir í vegan mataræði, ekki bara fyrir dýrin og umhverfið heldur líka heilsunnar vegna.“
Móeiður einblínir á jákvætt hugarfar og heilbrigði.
Árið 2017 hætti Móeiður með kærasta sínum til sex ára og flutti aftur til Keflavíkur þar sem hún ólst upp.
„Þá gaf ég allt í að byggja mig upp, andlega og líkamlega. Þetta var tíminn til að einblína bara á það,“ segir Móeiður. Hún fór í jóga og byrjaði í CrossFit.
„Í dag mæti ég eins oft og ég get og elska ekkert meira en að hreyfa mig, manneskjan sem að hataði allar íþróttir. Ég hef bætt á mig 20 kílóum síðan ég var sem veikust,“ segir Móeiður.
Hún er fjarþjálfun hjá Margréti Gnarr sem er mikil fyrirmynd fyrir henni. „Margrét hefur einnig glímt við átröskun. Hún veit mína sögu og fylgist vel með mér. Hún passar að það séu engir öfgar í neinu, hvorki mataræði eða æfingum.“
Bjartsýn á framtíðina
Skemmtilegir tímar eru fram undan hjá Móeiði. Hún er að fara að starfa sem flugfreyja næsta sumar, en áður fyrr hefði henni aldrei dottið í hug að hún myndi vinna í háaloftunum.
„Það er svo ótrúlegt hvernig hugarfarið hjá okkur getur breyst. Ég er ekki sama manneskjan og ég var. Ég opnaði loksins augun og sá allt það góða í kringum mig. Allt það sem ég hef í dag en hafði ekki fyrir nokkrum árum. Ég fór að taka eftir fegurðinni í sólsetrinu, náttúrunni, stjörnunum og öll því litla sem við eigum til að taka sem sjálfsögðum hlut,“ segir Móeiður.
„Það var svo margt sem okkur var kennt á Hvítabandinu sem að ég tileinka mér í dag. Eins og það að skrifa niður jákvæðar staðreyndir, markmið, drauma og allt það sem ég er þakklát fyrir. Ég stunda hugleiðslu reglulega og les mikið af uppbyggjandi sjálfshjálparbókum. Það sem skiptir öllu er að horfa aldrei til baka heldur að vera í núinu og stefna að því að verða betri manneskja en þú ert í dag. Vandamálin eru til að leysa og það sem drepur okkur ekki styrkir okkur og það er engin lygi. Það er engin skömm að því að þiggja aðstoð þegar okkur líður illa og allt virðist svo tilgangslaust. Það er til fólk sem getur hjálpað. Mér hefur aldrei á ævinni liðið jafn vel bæði líkamlega og andlega og er svo ótrúlega þakklát fyrir það.“
Í dag er hún hamingjusöm.
Að lokum vill Móeiður þakka starfsfólkinu á Hvítabandinu.
„Þau sýndu mér ljósið í myrkrinu og hjálpuðu mér aftur á lappir þegar ég var algjörlega týnd. Ég lærði líka að það er ALDREI fórnarlambinu að kenna í nauðgunarmálum og það er aldrei of seint að þiggja aðstoð. ALDREI gefast upp, sama hvað, lífið er þess virði að lifa því.“
Bílvelta varð á Tálknafirði, móts við Gileyri, síðastliðinn mánudag. Í skeyti sem lögreglan á Vestfjörðum birti á Facebook-síðu sinni kemur fram að þegar lögregla kom á vettvang hafi bifreiðin legið á hliðinni og verið alelda. Ökumaður og farþegi höfðu komist út úr bifreiðinni með aðstoð vegfarenda. Slökkvilið kom á staðinn skömmu síðar og slökkti eldinn. Lesa meira
Stjórn foreldrafélags Keiludeildar Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR), hefur sent stjórn ÍR og fulltrúum allra flokka í borgarráði Reykjavíkurborgar bréf, þar sem kvartað er yfir æfingaaðstöðu þeirra sem æfa keilu í Keiluhöllinni. Eru börn sem þar æfa sögð ónáðuð af drukknum viðskiptavinum og að skortur á afsláttarkjörum skapi stéttarskiptingu innan íþróttarinnar.
Þar segir meðal annars að barnungir iðkendur íþróttarinnar verði fyrir miklum truflunum af kúnnum Keiluhallarinnar, enda sé þar áfengi til sölu:
„Finnst okkur það ekki boðlegt að bjóða börnum uppá að æfa íþrótt í þeim aðstæðum sem að þau gera í dag. Mikið er um að fólk sem kemur sér til skemmtunar að spila keilu sé með áfengi um hönd og læti eftir því sem truflar iðkendur og er ekki þegar að lítur að öðrum íþróttum. Margt hefur verið reynt í vetur til að halda viðskiptavinum Keiluhallarinnar frá æfingasvæðunum þeirra en án árangurs. Viðskiptavinir Keiluhallarinnar virða ekki ummæli þjálfara, setjast inn á settin hjá krökkunum og oftar en ekki með áfengi um hönd.“
Sorgleg þróun
Keiluhöllin í Egilshöll er eina keiluaðstaðan á höfuðborgarsvæðinu og þykir stjórn foreldrafélagsins það bagalegt að íþróttin hafi ekkert val um æfingaaðstöðu:
„Auðvitað á íþróttin að vera aðskilin frá keilu sér til skemmtunar. Ofar en ekki eru miklar umræður um hve íþróttaiðkun sé mikilvæg forvörn gegn áfengi og fíkniefnum en ykkar keilu-iðkendur og börnin okkar alast upp við það að áfengi sé hinn eðlilegasti fylgihlut í þeirrar íþrótt, hversu sorglegt er það?“
Stuðli að stéttaskiptingu
Þá er tekið fram að afar kostnaðarsamt sé fyrir iðkendur að æfa sig aukalega utan æfinga, þar sem þeir njóti engra sérkjara eða afsláttar. Því sé aðgengi að æfingasvæðinu ekki sambærilegt við aðrar íþróttir hjá félaginu:
„Þarna skapast stéttaskipting innan iðkendahópsins því það eru einungis þeir velefnuðu foreldrar sem hafa tök á því að leyfa börnunum að fara utan æfingar. Krakkarnir njóta engra fríðinda eða afsláttar.“
Aðstaðan er sögð bágborin og til skammar fyrir foreldra, iðkendur og aðra áhorfendur sem vilji fylgjast með barni sínu og þess krafist að nýtt íþróttahús ÍR taki mið af þessu.
„Bæði myndi það borga sig fjárhagslega til lengdar, það myndi styrkja íþróttina til muna. Það yrði aukning innan deildarinnar. Við persónulega sjáum okkur ekki fært að mæla með íþróttinni eins og hún er stunduð í dag innan um skemmtanahald þar sem að áfengi er haft við hönd.“
Undir bréfið skrifa fyrir hönd Foreldrafélags keiludeildar ÍR, Regína L. Aðalsteinsdóttir formaður, Halldóra Björk Þórarinsdóttir, Heiðrún Sigurðardóttir, Guðbjörg Lind Valdimarsdóttir og Ásdís Richardsdóttir.
Munu koma til móts við þarfir iðkenda
Andrea Pétursdóttir framkvæmdastjóri Keiluhallarinnar, sagði við Eyjuna að hún vissi af bréfinu og Keiluhöllin væri boðin og búin til að koma til móts við þær óskir sem settar væru þar fram:
„Við skiljum málið ósköp vel og viljum reyna að gera enn betur til að bæta úr þessu. Það eru nú þegar tjöld á milli brautanna og við getum bæði fært þau til eða bætt við tjöldum líkt og við höfum komið á framfæri nú þegar og reynt að aðgreina plássin betur. Við viljum auðvitað að allir viðskiptavinir okkar upplifi sig örugga og verði ekki fyrir óþarfa áreiti. Við erum líka opin fyrir að skoða gjaldskrána varðandi afsláttarkjör fyrir börn sem vilja mæta utan æfingatíma, líkt og við nefndum á fundi með ÍR í vikunni, það er alveg sjálfsagt,“
sagði Andrea.
Keiluhöllin hyggst opna átta brautir í húsnæði Kex hótels í miðborginni á næsta ári og segir Andrea að keiluíþróttin muni njóta góðs af því:
„Það urðu smá tafir á framkvæmdum, en við stefnum að opnun þar eftir cirka eitt ár. Þá mun þetta allt horfa til betri vegar.“
Kardemommubærinn tekur fram úr Mosfellsbæ í íbúafjölda.
Miðsala á Kardemommubæinn hefur farið af stað með miklum látum og þegar þetta er ritað eru um 11.000 miðar seldir. Almenn miðasala hófst í dag.
Aukasýningum hefur nú verið bætt við en takmarkað magn sýninga er í boði næsta vor á þessa vinsælustu barnasýningu íslensks leikhúss.
Kardemommubærinn verður frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins 18. apríl næstkomandi en uppsetningin er jafnframt afmælissýning Þjóðleikhússins sem fagnar 70 ára afmæli á þessum vetri. Miðasalan hefur farið af stað með miklum látum og nú er orðið nær uppselt á 23 sýningar.
„Við höfum varla undan við að bæta við sýningum,” segir Atli Þór Albertsson markaðsstjóri Þjóðleikhússins. „Við erum að setja inn síðustu sýningar leikársins núna en það er ljóst miðað við viðtökurnar að fólk hefur beðið lengi eftir því að heimsækja Kardemommubæinn.”
„Kardemommubærinn virðist þannig hafa sama aðdráttarafl og t.d. Ed Sheeran og heimaleikir íslenskra landsliða í fótbolta, sem er magnað útaf fyrir sig.”
Leikstjóri sýningarinnar er Ágústu Skúladóttir. Á meðal leikara eru Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Sveppi, Oddur Júlíusson, Hallgrímur Ólafsson, Örn Árnason, Þórhallur Sigurðsson, Snæfríður Ingvarsdóttir, ErnestoCamilloAldazabal Valdes og fleiri.
Egner þótti afar vænt um þær góðu viðtökur sem verk hans hlutu hér á landi, og hann tengdist Þjóðleikhúsinu og starfsfólki þess nánum böndum. Kardemommubærinn er nú settur upp í Þjóðleikhúsinu í sjötta sinn, en sýningin er jafnframt 70 ára afmælissýning Þjóðleikhússins.
Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, er á eftir varnarmanninum unga William Saliba sem spilar í Frakklandi. Þessi saga er ansi furðuleg en Arsenal tryggði sér Saliba í sumar fyrir 27 milljónir punda. Hann var hins vegar lánaður aftur til St. Etienne og meiddist illa í byrjun tímabils. Saliba er hins vegar mættur til baka og Lesa meira
Ung kona er ráðþrota vegna typpastærðar kærasta síns. Hún leitar til Dear Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun. „Ég er 23 ára og kærasti minn er 30 ára. Hann er skilinn og hefur bara átt í sambandi með tveimur konum, fyrrverandi eiginkonu sinni og mér. Kynferðislegt samband okkar er byggt á einlægri tengingu. Ef ég Lesa meira
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir birtir nýja grein á vef Fréttablaðsins í kvöld þar sem hún svarar gagnrýnendum sínum. Grein Steinunnar í síðustu viku vakti mikla athygli og deilur en þar fagnaði hún skaðabótadómi Héraðsdóms Reykjavíkur, leikaranum Atla Rafni Sigurðssyni í vil, en hann höfðaði mál gegn leikfélagi Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússtóra Borgarleikhússins, vegna þess að honum var fyrirvaralaust sagt upp störfum hjá leikhúsinu vegna ásakana um kynferðislega áreitni. Hins vegar fékk Atli aldrei að vita efni ásakananna né hvaða konur ásökuðu hann.
Ágreiningurinn í ritdeilum Steinunnar og ýmissa feminisma snýst um rétt manna sem bornir eru sökum um kynferðislega áreitni til að bera hönd yfir höfuð sér, gagnvart rétti fólks til að koma fram með nafnlausar ásakanir og njóta nafnleyndar.
Grein Steinunnar í kvöld ber yfirskriftina „Ágæta Bentína“ og þar er Anna Bentína Hermansen ávörpuð en hún sendi til Fréttablaðsins yfirlýsingu undirritaða af 100 konum þar sem skrifum Steinunnar var mótmælt. Í grein sinni í kvöld segir Steinunn: „Tölum tæpitungulaust um kjarna málsins. Styrinn stendur um leikreglur samfélagsins eða siðferðisleg prinsipp, því við erum að öðru leyti sammála.“ Hún reifar síðan það sem hún segir vera nýjar leikreglur samfélagsins:
„Samkvæmt leikreglunum nýju má ekki gagnrýna konur en það má segja hvað sem er um karlmenn og bera á þá sakir. Ef konur ætla að setjast í dómarasæti eins og Kristín Eysteinsdóttir gerði, utan reglna samfélagsins, stöndum við frammi fyrir mun stærri vanda og ófyrirsjáanlegum skaða. Að gera því skóna að einhver sé afbrotamaður að óathuguðu máli og breiða það út er líka að setja sig í dómarasæti.
Leikreglur samfélagsins eru lög og réttarkerfi landsins sem við höfum sammælst um að sé það vegakerfi sem okkur er skylt að aka eftir. Ef þessar reglur eru ekki í heiðri hafðar mun allt fara til andskotans. Hins vegar er hægt að knýja fram breytingar á réttarkerfinu; um það eru mýmörg dæmi.“
Steinunn segir að þolendur verði að standa með sjálfum sér og gera verði þá kröfur til fullorðinna einstaklinga að stíga fram og sýna hugrekki:
„Við getum ekki krafist réttarfarslegra umbóta ef við knýjum þær ekki fram og ef viðkvæðið „þessi mál fá aldrei viðunandi afgreiðslu, orð okkar eru alltaf dregin í efa og þess vegna kærum við ekki “ halda áfram að heyrast. Þjáningaveginn verður að ganga þangað til að fólki finnst það sjálfsagt mál að leita réttar síns. Þarna eru engar auðveldar flýtileiðir í boði. Hér stendur hnífurinn í kúnni.
Það er á ábyrgð þeirra sem fara með mál brotaþola að veita þeim ekki aðeins áheyrn, skilning og samúð heldur efla þau til dáða og styðja þau til að leita réttar síns. Ef fólk eins og þú og aðrir sem starfa með brotaþolum eruð þeirrar skoðunar að það sé sjálfsagt að Atla var sagt upp störfum vegna þess að á hann voru bornar að því er virðist alvarlegar sakir án þess að hann fengi uppgefnar sakargiftir, er ég ykkur einfaldlega ósammála. Ef ykkur finnst eðlilegt að það sé réttað utan ‘leikreglna’ samfélagsins eins og gerðist þegar Atla var sagt upp störfum hef ég verulegar áhyggjur af því að þið séuð ekki starfi ykkar vaxin.“
Segir umræðuna brenglaða
Steinunn segir umræðu um ofbeldi vera orðin brenglaða og hugtakið vera orðið allt of teygjanlegt. Alla vanlíðan sem tengja má samskiptum kynjanna sé nú hægt að kalla ofbeldi. Það sé hins vegar ótækt:
„Ungir drengir eiga undir högg að sækja því það er stundum alveg sama hvernig þeir snúa sér í samskiptum við hitt kynið, þeir geta alltaf átt von á að það verði eftir á útskýrt sem ofbeldi vegna þess að orðið ofbeldi er algjörlega gengisfallið og getur nú þýtt nánast hvað sem er: návist, snerting, raddblær, augnaráð og allt rófið til hrottalegrar misbeitingar. Það hefur orðið mikil aukning á því að ungir drengir séu bornir þungum sökum að ósekju og það er ekkert réttlætanlegt við það. Að kalla það nauðsynlegan fórnarkostnað byltinga er bara ógeðslegt. Stúlkur eru einnig í vanda því að sumar fyrirmyndir, eins og Þórdís Elva, boða að ef þær upplifa eitthvað óþægilegt í samskiptum kynjanna þá skuli það heita ofbeldi og þær eigi heimtingu á að heimurinn skilgreini það líka sem ofbeldi. Að innræta slíkt hugarfar mun í lengdina mynda gjá á milli kynja, auka hatursorðræðu og sundra fólki á tímum þar sem nauðsynlegt er að fólk standi saman til þess að heimurinn sé áfram byggilegur.“
Steinunn gagnrýnir líka öðru sinni harkalega Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur sem ritaði bók um kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir og hélt fyrirlestra með geranda sínum sem gekkst við verknaðinum. Í fyrri grein sinni sakaði sakaði Steinunn Þórdísi um að markaðssetja ofbeldi. Hefur Steinunn verið sökuð um ofbeldi gegn Þórdísi með þessum skrifum sínum:
„Hvað varðar gagnrýni mína á Þórdísi Elvu, þá er rétt að ég gagnrýni hana harðlega í grein minni. Þú segir mig keppa í ofbeldi og sigra þá ofbeldiskeppni. Það sem ég gerði var að gagnrýna vinnuaðferðir hennar og framgöngu. Ef þú sérð ekki muninn á gagnrýni og ofbeldi tölum við tæpast sama tungumálið.
Það skiptir ekki nokkru einasta máli hvort mér finnst saga Þórdísar Elvu og Tom Stranger ótrúverðug eða sannfærandi, eða hvort mér finnst að bók Þórdísar, Handan fyrirgefningarinnar, hefði frekar átt að bera annan titil. Um það var ég ekki að skrifa í grein minni. Hún á næga aðdáendur og þarf ekki á minni velþóknun að halda. Ég minnist hins vegar ekki einu orði á að ég dragi upplifun Þórdísar í efa þótt þér henti að leggja svo út af orðum mínum og gera það að megininntaki greinar þinnar, því þú vilt ekki ræða aðalatriðið sem um ræðir, og ég spyr mig hvaða prinsipp hefur sá sem neitar að ræða grundvallaratriðin?
Ég skal vera eins skýrmælt og mér er unnt. Mér hugnast ekki að kalla Tom Stranger, fyrrum unnusta Þórdísar Elvu, nauðgara þótt hann gangist við því sjálfur. Ekki fremur en ég myndi nefna þjófóttan krakka þjóf langt fram á fullorðinsár. Þau voru bæði barnung þegar þetta gerðist og ég hef samúð með þeim báðum, henni 16 ára og honum 18 ára gömlum. Það er flókið að vera unglingur. Ég gagnrýndi það markaðstækifæri sem hún sá í upplifun sinni, þá fullorðin kona og framsetninguna alla. Mér finnst það lýsa ótrúlegri grimmd. Við Þórdís lítum fyrirgefninguna ólíkum augum.“
Steinunn segir Þórdísi hafa skaðað og skrumskælt umræðu um kynferðisbrotamál á Íslandi og hún ítrekar þá skoðun sína að Þórdís sé sjálfskipaður talsmaður #Metoo:
„Sú mynd sem Þórdís hefur málað af ofbeldisfullum heimi sviðslistafólks er langt frá þeim veruleika sem fólkið sem þar starfar þekkir. Sviðslistafólk hefur orðið fyrir ofbeldi á vinnustöðum sínum eins og því miður fólk í öllum starfsstéttum, ég er ekki að draga það í efa, en að íslenskur listaheimur sé eitthvað á pari við þann veruleika sem konur búa við í Hollywood er fjarstæða.“
Steinunn víkur síðan aftur að máli Atla Rafns og segir að hafi hann gerst brotlegur þá væri best að hann viðurkenndi brot sitt og fengi betrun. En þá þurfi hann líka að vita hvers eðlis brot hans var.
Massimiliano Allegri, fyrrum stjóri Juventus, ætti að reyna fyrir sér hjá Manchester United. Þetta segir Fabio Capello, fyrrum landsliðsþjálfari Englands, en Allegri leitar að nýju starfi þessa dagana. Hann er orðaður við störfin hjá Arsenal, Bayern Munchen og United en aðeins Bayern er án stjóra þessa stundina. ,,Hann myndi henta Bayern Munchen vel en ég Lesa meira
Íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir á von á sínu fyrsta barni með sínum heittelskaða, Vilhjálmi Sigurgeirssyni, framleiðanda. Parið hefur verið saman um nokkurt skeið og opinbera þau komu viðbótar við fjölskylduna á Facebook með bumbumyndum af Eddu. „Fallega Eddan mín,“ skrifar Vilhjálmur við myndirnar og rignir hamingjuóskum yfir parið. Fókus óskar Eddu og Vilhjálmi innilega til Lesa meira
Fyrir 12 árum hóf Kevin Zimmerman störf sem lögreglumaður í Milwaukee í Bandaríkjunum. Síðan þá hefur margt drifið á daga hans en nýlega lenti hann í atviki sem komst heldur betur í fréttirnar.
Snemma í október stöðvaði hann akstur konu einnar. Þegar hann leit inn í bílinn sá hann að hún var með þrjú ung börn í aftursætinu og voru þau ekki í bílstólum. Sem lögreglumaður og faðir vissi hann auðvitað að börn eiga að vera í bílstólum.
„Nú er að koma vetur og það þarf að greiða reikninga, ég þarf að kaupa úlpur, stígvél og fleira svo þetta er mjög erfiður árstími fyrir mig.“
Sagði konan, sem heitir Andrella Jackson, við Zimmerman.
Kevin og tvö af börnunum.
Hann hefði auðvitað getað sektað hana en ákvað þess í stað að fara aðra leið. Hann lét Jackson því fylgja sér í nærliggjandi stórverslun þar sem hann keypti bílstóla og greiddi úr eigin vasa. Hann kom þeim síðan fyrir í bíl Jackson.
„Hann er frábær. Ég kann svo sannarlega að meta allt það sem hann gerði fyrir okkur.“
Sagði Jackson.
Í samtali við TMJ4 vildi Zimmerman ekki gera mikið úr eigin ágæti eða því sem hann gerði.
„Ég gerði þetta ekki til að hljóta lof fyrir. Ég gerði þetta af því að ég á sjálfur börn og ég vil ekki að neitt komi fyrir börnin hennar. Ef eitthvað kæmi fyrir börnin mín myndi ég vera eyðilagður fyrir lífstíð.“
Gríðarleg reiði ríkir í Belgíu þessa dagana eftir að dómstóll kvað upp úr um að Marc Dutroux, 62 ára, eigi rétt á að gangast undir nýja geðrannsókn. Ef útkoma hennar verður honum hagstæð gæti svo farið að hann verði látinn laus til reynslu. Það er einmitt reynslulausnin sem fer illa í landsmenn. Dutroux hefur setið í fangelsi í 23 ár en hann var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morð, mannrán og naugðanir á barnungum stúlkum á á tíunda áratugnum.
Fólk hefur mótmælt á götum úti og látið reiði sína í ljós á ýmsan hátt. Dotroux, sem er nefndur „Skrímslið frá Charleroi“ hefur margoft sótt um reynslulausn en þeim beiðnum hefur alltaf verið hafnað. En þessi nýja niðurstaða dómstólsins hefur vakið mál Dotroux til lífs á nýjan leik meðal þjóðarinnar.
Dutroux komst í heimsfréttirnar 1996 þegar upp komst að hann hafði framið nokkur viðurstyggileg morð og beitt barnungar stúlkur kynferðisofbeldi. Á árunum 1995 til 1996 rændi hann, nauðgaði og pyntaði að minnsta kosti sex stúlkur á aldrinum 8 til 19 ára.
1996 tóku allt að 350.000 manns þátt í minningargöngum til að heiðra minningu fórnarlamba Dutroux. Málið sameinaði þessa klofnu þjóð sem hefur árum saman verið klofin í herðar niður vegna ósættis milli norður- og suðurhlutans.
En Dutroux var ekki að komast í kast við lögin í fyrsta sinn 1996. 1989 var hann dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir margar nauðganir. Hann var látinn laus 1992 vegna góðrar hegðunar í fangelsinu.
Ofbeldið hófst á nýjan leik
Fyrstu fórnarlömb hans, eftir að hann var látinn laus, voru tvær átta ára stúlkur sem hann rændi þegar þær voru á leið heim úr skóla í útjaðri Liége í júní 1995. Því næst fór þessi atvinnulausi rafvirki með þær heim í húsið sitt í Charleroi í tæplega 100 km fjarlægð. Þar voru þær læstar inni í klefa í kjallaranum.
Tveimur mánuðum síðar rændu Dutroux og samverkamaður hans, Michel Leliévre, tveimur stúlkum, 17 og 19 ára, sem voru á leið heim eftir að hafa verið að skemmta sér í bænum Oostende í hinum enda landsins. Annar samverkamaður Dutroux, Bernard Weinstein, gróf stúlkurnar lifandi í garðinum við heimili Dutroux. Weinstein endaði daga sína einnig í garðinum þar sem Dutroux gróf hann í nóvember 1995.
Weinstein var eftirlýstur fyrir bílþjófnað og Dutroux var síðar dæmdur fyrir bílþjófnað og fór í fangelsi í fjóra mánuði. Þáverandi eiginkona hans, Michelle Martin, segir að hún hafi ekki þorað að fara niður í kjallara til átta ára stúlknanna og gefa þeim mat á meðan Dutroux var í fangelsi. Hann hafði þó skipað henni að gera það. Litlu stúlkurnar létust úr hungri.
1996 rændu Dutroux og Leliévre tveimur stúlkum, 12 og 14 ára, með nokkurra mánaða millibili. Þegar þeir rændu þeirri 14 ára tók vitni eftir skráningarnúmerinu á sendibíl Dutroux. Það leiddi til að fjórum dögum síðar voru Dutroux, Martin og Leliévre handtekin. Dutroux vísaði lögreglunni á kjallarann þar sem stúlkurnar tvær fundust á lífi. Síðan fundust lík hinna stúlknanna fjögurra og Weinstein.
Rannsóknin á máli Dutroux hefur löngum verið umdeild og umrædd. Margir segja hana ekki hafa verið nægilega góða og að hugsanlega hefði verið hægt að bjarga stúlkunum. Dutroux sagðist vera meðlimur í stórum barnaníðingshring sem tengdist elítu landsins. Engar sannanir fundust fyrir þessu.
Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi 2004.
Málið hefur kraumað undir yfirborðinu í Belgíu allar götur síðan það kom upp. Fyrir átta árum vakti það mikla reiði þegar Michelle Martin fékk reynslulausn til að geta gengið í klaustur. Hún hafði þá setið í fangelsi í 15 ár og hafði fjórum sinnum áður sótt um reynslulausn. Það mun örugglega valda enn meiri reiði ef Dutroux fær reynslulausn. Ef hann fær reynslulausn verður það 2021 en þá hefur hann setið í fangelsi í 23 ár.
Samantha Mears frá Montana í Bandaríkjunum var nýlega dæmd til 20 ára meðferðar hjá sérfræðingum á viðeigandi stofnun. Ástæðan er að hún braust inn til fyrrum unnusta síns síðastliðið sumar vopnuð sveðju. Hún nauðgaði honum síðan. Hún braust inn til hans á meðan hann var úti að versla. Þegar hann kom heim aftur beið hún Lesa meira
Árum saman glímdi ástralskur karlmaður við vandamál tengd nefinu. Honum var stöðugt illt í því og hann var sífellt með sýkingar í nefinu og nærliggjandi svæðum. Á endanum ákvað hann að leita hjálpar og fór á sjúkrahús. Óhætt er að segja að niðurstöður rannsókna lækna þar hafi verið óvæntar. Skýrt er frá málinu í vísindaritinu Lesa meira
Í gær kom Philip Manshaus, 22 ára, í fyrsta sinn fyrir dóm í Osló. Hann er ákærður fyrir morð og hryðjuverk. Hann las upp fjögurra mínútna langa yfirlýsingu í dómssal og sagðist hann vilja vernda kynslóðir framtíðarinnar sem rambi á barmi útrýmingar. Áður en hann las yfirlýsinguna upp hafði hann heilsað að nasistasið. Hann er Lesa meira
Andre Gomes, leikmaður Everton fór undir hnífinn í gær eftir að hafa brotnað á ökkla um helgina. Atvikið var óhugnalegt. Son Heung-min, leikmaður Tottenham braut þá á Gomes sem féll áfram og á Serge Aurier, Við höggið brotnaði ökkli hans illa. Son fékk að líta rauða spjaldið, sem var umdeildur dómur. Fyrst um sinn ætlaði Lesa meira
Charna Rowley sagði upp vinnunni sinni í þeirri von um að vera næsta Mukbang stjarnan á YouTube. Mukbang myndbönd eru mjög vinsæl á YouTube. Þessi myndbandastíll kom fyrst frá Suður-Kóreu og snýst um að fólk er að spjalla og borða fyrir framan myndavélina.
Margir þeirra sem gera Mukbang myndbönd borða óhóflega mikið magn af mat í einu og vill Charna verða ein af þeim. Hún vill borða McDonalds, kínverskan skyndibitamat og Pizza Hut fyrir framan myndavél og deila afrakstrinum á YouTube.
Mynd: Mirror
Charna, 22 ára, tekur myndbönd af sér innbyrða um 5500 kaloríur í einu. Venjulega fær hún um 5 til 10 þúsund áhorf en vinsælasta myndbandið hennar hefur fengið yfir 50 þúsund áhorf. Til þess að eltast við draum sinn að verða YouTube-stjarna hefur hún sagt upp vinnunni sinni. Hún vinnur að hluta til nú í vöruhúsi á meðan hún reynir fyrir sér á samfélagsmiðlinum.
Charna segir markmið sitt vera að geta borðað 10 þúsund kaloríur í einni máltíð.
„Ég verð bara að sýna hversu örugg ég er. Það festist kannski eitthvað í tönnunum á mér eða í kringum munninn en fólk elskar hversu fyndin ég er,“ segir hún við Mirror.
„Ég fæ oft neikvæð komment, fólk segir hversu feit ég er, hversu sæt ég gæti orðið ef ég myndi ekki borða svona mikið, en ég bara svara þeim oftast ekki.“
Mynd: Mirror
Hún segist njóta þess að taka upp Mukbang myndbönd og það gefi henni aukið sjálfsöryggi.
Charna er um 100 kíló og fer í ræktina fjórum sinni í viku til að vega á móti óheilbrigðu mataræði sínu. Hún og kærasti hennar taka oft upp myndbönd saman og segist móðir hennar styðja hana áfram í nýja ferlinum.
Hér að neðan geturðu horft á vinsælasta myndbandið hennar.
Að minnsta kosti níu bandarískir ríkisborgarar, þrjár mæður og sex börn þeirra, voru myrt af mexíkóskum glæpasamtökum að talið er. Um var að ræða hóp bandarískra mormóna sem búsettur var í Sonora-héraði í Mexíkó, en héraðið liggur að ríkismörkum Arizona. Fólkið var á leið í brúðkaup í gær en alls voru sautján manns á ferð Lesa meira