Gelson Martins, leikmaður Monaco, varð sér til skammar í kvöld í 3-1 tapi gegn Nimes. Tiemoue Bakayoko fékk beint rautt spjald á 32. mínútu í kvöld og á sömu mínútu fékk Martins það sama frá dómaranum. Bakayoko fór glannalega í leikmann Nimes og má segja að hann hafi fengið verðskuldað spjald. Martins brást illa við Lesa meira
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segir að leikmenn liðsins hafi ekki verið nógu hreyfanlegir fyrir Bruno Fernandes í dag. Fernandes spilaði í markalausu jafntefli við Wolves og var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið. ,,Við vorum með Bruno á boltanum aftar á vellinum. Við stjórnuðum fyrri hálfleiknum vel. Í seinni hálfleik ógnuðum við Lesa meira
Roma þurfti að sætta sig við virkilega slæmt tap í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Liðið mætti Sassuolo á útivelli og mætti í raun aldrei til leiks í annars mikilvægum leik í Evrópubaráttu. Staðan var orðin 3-0 fyrir Sassuolo eftir 26 mínútur áður en Edin Dzeko lagaði stöðuna í seinni hálfleik. Lorenzo Pellegrini fékk svo rautt Lesa meira
Oft er haft á orði að hjól réttvísinnar snúist hægt og það fékk breska konan Beatrice Annie Pace að reyna á eigin skinni árið 1928. Þannig var mál með vexti að Beatrice hafði misst eiginmann sinn, Harry Pace, þann 10. janúar þetta ár. Hjónin bjuggu á Starveacre Farm í Bleak Moor í Gloucestershire þar sem þau héldu nokkrar ær og segir ekkert frekar af þeirra högum þar. Harry Pace hafði lengi verið heilsuveill og hafði að sögn iðulega haft á orði að hann þjáðist og að lífið væri ekki þess virði að lifa því. Enn fremur hafði hann hótað að innbyrða fjárbaðlyf, sem að mestu samanstóð af arseniki.
Í ljósi alls þessa taldi Beatrice að hinn lífsleiði 36 ára eiginmaður hennar hefði einfaldlega látið verða af hótun sinni.
Grunsemdir bróðurins
Í ljósi alls og alls var ekki fráleitt að ætla að Beatrice hefði rétt fyrir sér og hver veit nema að þarna og þá hefði málinu verið lokið, ef ekki hefði verið fyrir bróður Harrys, Elton Pace.
Elton sagðist muna að Beatrice hefði tíðum óskað þess að „sá gamli myndi deyja“. Elton grunaði Beatrice um græsku og viðraði þær grunsemdir sínar við lögreglu og sagði öllum sem vildu heyra að Beatrice væri morðkvendi.
Það varð úr að fyrirskipuð var rannsókn á líkamsleifum Harrys og fundust leifar af arseniki í þeim. Beatrice var kærð fyrir morð en naut mikillar samúðar almennings, svo mikillar að þess voru fá fordæmi þegar um var að ræða glæp sem varðaði dauðadóm.
Einangrun og endurtekin frestun
Nú tóku við fyrrnefnd hjól réttvísinnar og í fjóra mánuði var Beatrice haldið í einangrun í Harrow, en fátt annað gerðist. Í lok varðhaldsins var Beatrice loksins ákærð fyrir að hafa orðið eiginmanni sínum að aldurtila með eitri.
Ekkjan Beatrice Pace upplifði hálfs árs helvíti fyrir réttarhöldin.
Þá tóku við enn frekari hörmungar hjá ekkjunni. Réttarrannsókninni var frestað og síðan frestað enn á ný og Beatrice varð ásýnd hörmungar.
Ítrekað bugaðist hún undan álaginu og langvarandi yfirheyrslum og að lokum missti almenningur, sem hafði fylgst með málinu af miklum áhuga, þolinmæðina.
Þess var krafist að réttað yrði yfir Beatrice án tafar eða henni sleppt – þessi meðferð væri ekki nokkurri manneskju bjóðandi.
Slæmur eiginmaður
Það varð úr og málflutningur hófst. Sækjandi í málinu sagði að Beatrice hefði vissulega elskað eiginmann sinn, en hefði mátt þola 19 ára hjónabandseymd. Hún hefði verið einkar falleg, ung kona þegar hún, sautján ára að aldri, giftist Harry, en hjónabandssælan hefið orðið skammlíf.
Harry ku hafa látið hendur skipta oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, meðal annars skömmu áður en Beatrice ól eitt barna þeirra.
Það kom, að sögn lækna, þó ekki í veg fyrir að Beatrice hefði sinnt Harry af alúð í langvinnum veikindum hans. Hún hefði að lokum komið honum á sjúkrahús, en Harry hefði krafist þess að fara heim, sem varð raunin. Beatrice hefði þá haldið áfram að annast um hann af sömu ástúð og fyrr.
Tryggð og umhyggja
Svo komu jólin árið 1927 og Harry elnaði sóttin. Fyrir dómi sagði læknir frá því hvernig Beatrice fór um fimm kílómetra leið, fótgangandi í gegnum hnéháan snjóinn, í kafaldsbyl til að sækja hann og síðan sömu leið til baka.
Elton Pace gaf ekki mikið fyrir þessa frásögn læknisins eða aðrar sem báru Beatrice gott vitni. Hann sagði fullum fetum að þessi tryggð og umhyggja af hennar hálfu væri leikaraskapur, og slíkt hið sama gilti um þá sorg sem hún sýndi í kjölfar dauða Harrys.
Af forsíðu Thomson’s Weekly News Ásakanir mágs Beatrice settu af stað atburðarás.
Beatrice, sagði Harry, vildi eiginmann sinn feigan og sakaði hana um að hafa verið með leynimakk svo hún fengi ósk sína uppfyllta.
Stuðningur almennings
Meðan á öllu þessu gekk innan veggja dómshússins átti sér stað ákveðin þróun utan veggja þess. Almenningur fór ekki í launkofa með stuðning sinn við Beatrice. Tilboðum um að sjá um börn Pace-hjónanna rigndi inn sem og gjöfum til barnanna. Stuðningshróp ómuðu í hvert sinn sem Beatrice sást koma til dómhússins eða yfirgefa það.
Daily Sketch Fjölmenni flykktist að dómhúsinu í Gloucester Beatrice til stuðnings.
Þúsundir flykktust til Gloucester og skipulagðar voru sérstakar ferðir til borgarinnar. Lögreglan hafði í nógu að snúast og iðulega kom fyrir að raðir hennar rofnuðu og kalla þurfti til liðsauka vegna fólks sem vildi sýna Beatrice stuðning.
Yfirlið og hjartaáfall
Mikill tilfinningahiti réð ríkjum og Elton var áreittur enda illa séður vegna framburðar síns. Eitt vitna ákæruvaldsins féll í yfirlið og á öðrum degi réttarhaldanna fékk kona sem sat í kviðdómi hjartaáfall.
Dómarinn vildi í lengstu lög koma í veg fyrir óþarflega langa þrautagöngu Beatrice og tafir og fyrirskipaði að læknir og hjúkrunarkona yrðu til taks fyrir kviðdóminn.
Talið var að réttarhöldin stæðu í fjóra daga, en ákæruvaldið þurfti hálfum degi betur til að ljúka sínum málflutningi og því ljóst að réttarhöldin drægjust eitthvað.
Verjandi Beatrice sagðist engu hafa að svara fyrir hönd hennar, enda hefði sækjandi ekki sýnt fram á að Beatrice hefði byrlað eiginmanni sínum eitur. Þvert á móti hefði sækjandi undirstrikað tryggð ekkjunnar við eiginmann sinn sáluga.
Hátíðarstemning
Sækjandi sá sitt óvænna og lagði mál sitt í hendur dómara sem sagði að hann myndi mælast til sýknuúrskurðar af hálfu kviðdóms. Vart hafði hann sleppt orðinu þegar margir kviðdómara stóðu á fætur og mæltust til sýknu. Slíkur var asinn að ekki vannst tími til að leggja spurninguna formlega fyrir kviðdóminn.
Fagnaðaróp þeirra sem voru innan dyra dómhússins bárust til eyrna fjöldans sem beið fyrir utan, sem taldi um 6.000 manns.
Þar myndaðist hátíðarstemning og lúðrasveit lék þjóðsönginn. Beatrice Pace fékk að sameinast tveimur barna sinna sem höfðu beðið í ofvæni í hliðarherbergi í dómhúsinu. Síðan fékk hún lögreglufylgd að bifreið og var, við gríðarlegan fögnuð viðstaddra, ekið til Galeford-þorps þar sem hin börn hennar biðu.
Þess má geta að í kjölfarið fór Elton Pace heim og lögreglan taldi að réttast væri að fylgja honum og öflugt lið úr röðum riddaralögreglunnar gerði það svikalaust fyrstu fimm kílómetrana.
Vinnubrögð gagnrýnd
Svona fór um sjóferð þá. Þann 6. júlí, 1928, eftir um hálfs árs vafstur, málalengingar, en einna helst athafnaleysi lögreglu og ákæruvalds og vafasamrar meðferðar á Beatrice, kom á daginn að sannanir gegn henni voru engar, hvorki af hálfu ákæruvaldsins, Scotland Yard, innanríkisráðuneytisins eða sérfræðinga á sviði lyfja og eiturs.
The People Einangrun og stífar yfirheyrslur nánast buguðu Beatrice.
Lagt var til að vinnubrögð lögreglunnar yrðu tekin til gagngerrar skoðunar hjá sérstakri nefnd sem þá þegar var í burðarliðnum.
Í leiðara Daily News var sú skoðun viðruð að vinnuferli dánardómstjóra og lögreglunnar allrar yrði kannað ofan í kjölinn.
Dagblaðið Daily Mail tók í svipaðan streng í sínum leiðara og í honum var haft á orði að almenningur muni krefjast þess að tryggt yrði að enginn þyrfti að ganga í gegnum það sama og Beatrice Pace áður en að réttarhöldum kæmi.
Brasilíumaðurinn Neymar fékk fáránlegt gult spjald í leik við Montpellier í gær.
Neymar spilaði í öruggum 5-0 sigri PSG en hann var ásakaður um að sýna andstæðingunum óvirðingu í leiknum.
Neymar reyndi að lyfta boltanum skemmtilega yfir varnarmenn Montpellier og fór boltinn þaðan í innkast.
Hann fékk þá orð í eyra frá dómara leiksins sem bað hann um að hætta að sýna mótherjum óvirðingu.
Neymar svaraði fyrir sig og sagðist bara vera að spila fótbolta sem er í raun það sem hann var að gera.
,,Ég er bara að spila fótbolta og hann gefur mér gult spjald! Segðu við dómarann að hann megi ekki spjalda mig,“ sagði Neymar við liðsfélaga sinn Marco Verratti eftir atvikið.
Paris Saint-Germain 5-0 Montpellier: Yesterday Paris Saint-Germain forward Neymar was told by referee Jerome Brisard to stop showboating as it was disrespectful. He was then given a yellow card for disagreeing. #DiskiFanspic.twitter.com/TKG4yLMs6f
Það er alveg ljóst að Liverpool mun fagna sigri í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Liverpool er með 22 stiga forskot á toppi deildarinnar þegar aðeins 13 umferðir eru eftir af deildinni. Manchester City mistókst að sækja að Liverpool gegn Tottenham í dag og tapaði 2-0 á útivelli. Liverpool hefur unnið 24 af 25 leikjum Lesa meira
Ekki eyða tíma þínum í að vera reið/ur. Þótt ríkt hafi eitthvert ósætti á milli þín og einhvers þá er best að grafa stríðsöxina og horfa fram á veginn. Stundum er ágætt að setja sig í spor annarra og þá sér maður að viðkomandi meinti ekkert illt heldur er að berjast við eigin djöfla.
Naut 20. apríl–20. maí
Þig vantar smá fjör í lífið og leitar til vina og vandamanna til að skipuleggja einhverja stórkostlega ferð eða viðburð. Hér er skipulagt stutt fram í tímann og því ljóst að þetta stuð fer fram í nánustu framtíð. Á meðan þú bíður skaltu reyna að komast að því hvaðan þessi leiði þinn kemur.
Tvíburar 21. maí–21. júní
Þetta er klárlega vikan þar sem þú finnur fyrir mikilli velgengni í vinnunni. Á vinnustaðnum hefur verið mikill samdráttur og þú hefur sloppið vegna vinnusemi þinnar og dugnaðar. Það er því súrsætt að ganga svo vel á meðan aðrir þurfa að taka pokann sinn. Reyndu samt að njóta þess og halda áfram á sömu braut.
Krabbi 22. júní–22. júlí
Ef þú átt inni smá sumarfrí þá skaltu taka það út núna þar sem hausinn þinn er úti um allt þessa vikuna. Þú þarft að fá lausan tauminn til að gera það sem þú vilt, ekki það sem yfirmaðurinn vill. Þú átt erfitt með að sitja kyrr og finnur fyrir mikilli ólgu innra með þér, sem er samt mjög jákvæð.
Ljón 23. júlí–22. ágúst
Lofuð ljón eru byrjuð að skipuleggja Valentínusardaginn og eru uppfull af þrá og ástríðu. Hins vegar virðist makinn ekki vera á sömu blaðsíðu og því er mikilvægt að þið talið vel saman svo enginn verði fyrir vonbrigðum. Einhleyp ljón eru nákvæmlega það – ein. Þetta er einfaldlega ekki réttur tími fyrir ástina og hún kemur þegar þú ert tilbúin/n.
Meyja 23. ágúst–22 .sept
Þú finnur fyrir nýju öryggi og festu og hefur nóg sjálfsöryggi til að segja maka þínum hvað þig dreymir um í svefnherberginu. Út frá því taka við margar nætur af ástríðu og girnd, sem er einmitt það sem þú þurftir í lífinu. Ekki hafa áhyggjur af hversdagslegu hlutunum – njóttu bara undir sænginni.
Vog 23. sept–22. okt
Þú setur þér raunhæf heilsumarkmið sem þú stendur við. Þú finnur einhverja hreyfingu eða mataræði sem hentar þér og kroppurinn blómstrar, án þess að þú þurfir að segja nei við öllu sem þú elskar. Þetta er þinn tími, kæra vog. Það eru miklar breytingar í gangi en þú ætlar ekki að bugast.
Sporðdreki 23. okt–21. nóv
Lofaðir sporðdrekar eru í daðurstuði en þú skalt passa þig á einu – ekki láta vænlegan vonbiðil renna þér úr greipum því þú þykist vera of merkileg/ur eða hafa of mikið að gera. Stundum er ekki gott að láta ganga á eftir sér og ef þú ert tilbúin/n í eitthvað meira en daður skaltu láta vita.
Bogmaður 22. nóv–21. des
Þú leitar í öryggið og hlýjuna heima hjá þér og nennir varla að fara út úr húsi nema til að gera það allra nauðsynlegasta. Þú nýtur tímans í örygginu og hefur enga löngun til að upplifa ævintýri. Þetta er tímabil og svo lengi sem þér líður vel þá má það vara eins lengi og þú vilt.
Steingeit 22. des–19. janúar
Það er rosalega mikið að gera hjá þér og þú tekur að þér alls kyns aukavinnu. Það þýðir að þú hefur minni tíma fyrir vini og fjölskyldu, en það er allt í lagi við og við. Þegar vinnutímabilinu lýkur skaltu leggja áherslu á að hafa gaman, bjóða í mat og hlæja svolítið mikið.
Vatnsberi 20. janúar–18. febrúar
Þú leggur mikið upp úr því að koma fjármálunum í lag og febrúarmánuður er akkúrat rétti tíminn til að gera það. Mánuðurinn er aðeins styttri en hinir, þótt hann sé langur í ár, og því nærð þú að rétta vel úr kútnum ef þú skipuleggur þig, eyðir ekki umfram efni og skipuleggur framtíðina – sem þarf ekki alltaf að vera leiðinlegt.
Fiskar 19. febrúar–20. mars
Það geislar af þér sjarmi og kynþokki þessa vikuna, en þú vilt ekki eyða þessari orku í eitthvað sem skiptir ekki máli. Notaðu hana og beislaðu til að fá þínu framgengt og láta ástvinum þínum líða vel í kringum þig. Þú hefur marga fjöruna sopið og nú er kominn tími til að þú njótir lífsins út í ystu æsar.
Afmælisbörn vikunnar
2. febrúar – María Ólafsdóttir söngkona, 27 ára 3. febrúar – Guðrún Dögg, fyrrverandi fegurðardrottning, 29 ára 4. febrúar – Bergrún Íris Sævarsdóttir rithöfundur, 35 ára 5. febrúar – Ásta Guðrún Helgadóttir stjórnmálakona, 30 ára 7. febrúar – Ívar Örn Sverrisson leikari, 43 ára 7. febrúar – Smári McCarthy stjórnmálamaður, 36 ára 8. febrúar – Jóhann Hjartarson skákmaður, 57 ára
Það er talið vera ákveðinn heiður fyrir kvikmyndir þegar hlutlausir aðilar tryggja sér réttinn til að endurgera verkið fyrir stærri markað. Í íslenskri kvikmyndagerð er oft slegist um þennan heiður og hafa ófáar endurgerðir á íslenskum verkum verið settar á teikniborðið undanfarin ár. Þekktustu dæmin eru sennilega Contraband, Prince Avalanche og Benji the Dove svo dæmi séu nefnd, en til hefur staðið að blása til fleiri endurgerða á vestrænum velli. Skoðum aðeins þetta umrædda teikniborð og verkefnin sem eru bæði í vinnslu og limbói.
Hvað varð um erlendan Erlend?
Árið 2008 seldi Baltasar Kormákur réttinn á endurgerð kvikmyndarinnar Mýrin. Þetta var tveimur árum eftir útgáfu myndarinnar hér á landi og var það bandaríska framleiðslufyrirtækið Overture Films sem eignaði sér þennan rétt. Erlendis ber kvikmynduð saga Arnalds Indriðasonar nafnið Jar City og hefur ítrekað verið reynt að koma þessu verkefni af stað en verkfall handritshöfunda í Hollywood árið 2008 hafði mikil áhrif á þróun þessarar myndar.
Síðar fór Overture Films á hausinn og tók David Linde við keflinu, en hann var eitt sinn í forsvari fyrir Universal og kvikmyndafyrirtækið Focus en hefur nú stofnað nýtt framleiðslufyrirtæki. Árið 2012 var blásið nýju lífi í verkefnið og kom til greina að ráða Brian Kirk sem leikstjóra, en hann er þekktur fyrir aðkomu sína að Game of Thrones og spennumyndinni 21 Bridges. Staða bandarísku Mýrarinnar er enn óljós en upprunalega myndin hefur hlotið jákvætt umtal og eignast sterkan aðdáendahóp á liðnum árum. Ekki hefur komið til tals hvaða erlendu leikarar koma til greina í hlutverk lögreglumannsins Erlends, sem Ingvar Sigurðsson túlkaði eftirminnilega.
Í stríði við fjármagnsaðila
Þegar réttur til endurgerðar er tryggður er það sjaldan samasemmerki á bratta framleiðslu. Það vakti þó fljótt athygli í kringum jólin 2018 þegar leikkonan og leikstjórinn Jodie Foster tryggði sér réttinn á kvikmyndinni Kona fer í stríð frá Benedikt Erlingssyni. Heimildir herma að Foster hafi kolfallið fyrir upprunalegu myndinni og hyggst hún leikstýra, framleiða og leika aðalhlutverkið. Fjármögnun þessa verkefnis hefur hins vegar gengið hægar en aðstandendur hafa kært sig um. Verkefnið ku þó enn vera í pípunum hjá Foster og hennar teymi, en biðin gæti orðið lengri en upphaflega var ætlað.
Úr rökkri í nýtt dagsljós
Íslenska hrollvekjan Rökkur hlaut frábæra dóma í kringum útgáfu hennar en fóru því miður ekki margir landsmenn að sjá hana. Umtalið eitt hefur þó gert prýðisgagn og verður myndin endurgerð af framleiðslufyrirtækinu Orion Pictures fyrir bandarískan markað. Erlingur Óttar Thoroddsen, leikstjóri og handritshöfundur upprunalegu myndarinnar, skrifar nýju útgáfuna meira að segja. Orion Pictures var nokkuð stórt á níunda og tíunda áratug síðastu aldar og framleiddi gæðamyndir á borð við The Silence of the Lambs, Platoon, The Terminator, Amadeus og fleiri. Endurgerð myndarinnar verður dreift af fyrirtækinu United Artists og er framleiðsla búin að vera á fullu skriði, þótt enn eigi eftir að tilkynna frumsýningardag.
Fangar selja
Sjónvarpsserían Fangar er fyrsta íslenska sjónvarpsserían sem verður endurgerð í Hollywood, en rétturinn var nýlega seldur þangað. Fangelsisdramaþættir hafa verið sérlega vinsælir undanfarin ár og hefur hvert framleiðslufyrirtækið á fætur öðru slegist um að tryggja sér eitthvað nýtt í þeim efnum. Staða endurgerðar er enn í fullum gangi og verður áfram, nema í ljós komi að bóla prísundardramageirans springi á næstu misserum.
Ekki réttur tími
Stórrisarnir hjá 20th Century Fox tryggðu sér réttinn á sjónvarpsþáttaröðinni Réttur frá Saga Film. Þróun þessa verkefnis hófst árið 2012 og er í höndum framleiðandans Howards Gordon, sem kom meðal annars að gerð þáttanna 24 og Homeland. Búið var að gefa upp að heiti þáttanna yrði Ritter, en nokkrum árum síðar tók NBC við verkefninu og nefndi þættina Infamous. Sjónvarpsstöðin gerði prufuþátt og var hann í umsjón þeirra sem standa á bak við þættina This is Us. Prufuþátturinn var afhjúpaður snemma árið 2017 og fékk ekki samþykki til áframhaldandi framleiðslu.
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, var óánægður með VAR í leik gegn Manchester City í dag sem vannst 2-0. Mourinho vildi sjá Raheem Sterling fá beint rautt spjald fyrir brot á Dele Alli í fyrri hálfleik. ,,Ég er svo ánægður fyrir hönd strákanna. Við vorum svolítið heppnir stundum en annars vorum við verulega óheppnir að VAR Lesa meira
Manchester City fékk vítaspyrnu gegn Tottenham í dag í leik sem tapaðist 2-0 á útivelli. City hefur fengið nokkrar vítaspyrnur á tímabilinu en það hefur gengið illa að skora úr þeim. Fjórar af síðustu sex vítaspyrnum Liverpool hafa ekki endað í netinu sem er mikið áhyggjuefni. Ilkay Gundogan klúðraði vítinu í dag en áður hafa Lesa meira
Enskir miðlar greina frá því í kvöld að Kepa Arrizabalaga sé mögulega búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Chelsea. Kepa er dýrasti markvörður sögunnar en hann kostaði yfir 70 milljónir punda sumarið 2018. Hann var fínn á sínu fyrsta tímabili á Englandi en hefur verið harðlega gagnrýndur undanfarna mánuði. Willy Caballero var mættur í Lesa meira
Barcelona vann mikilvægan sigur í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Levante. Ungstirnið Anso Fati skoraði bæði mörk Börsunga í leiknum sem höfðu betur 2-1 að lokum. Ruben Rochina skoraði eina mark gestanna frá Levante en það kom í uppbótartíma. Barcelona er þremur stigum á eftir Real Madrid sem er á toppi deildarinnar. Á Lesa meira
Edinson Cavani, leikmaður Paris Saint-Germain, hafnaði því að ganga í raðir liðs í ensku úrvalsdeildinni í janúar. Ástæðan er sú að Cavani hefur ekki áhuga á að elta peningana og vildi bara komast til Spánar. Atletico Madrid var nálægt því að fá Cavani en PSG vildi ekki hleypa honum þangað fyrir lægri upphæð en upphaflega Lesa meira
„Þetta er bara einhver einbeiting sem ég get ekki gert mér grein fyrir,“ sagði Njáll Torfason aflraunamaður í viðtali á Stöð 2 árið 1993. Það hafði þá vakið mikla athygli og eftirtekt þegar í ljós kom að Njáll var fær um festa á sig ýmsa hluti úr járni, postulíni og plasti, að því virtist með hugarorkunni einni saman.
Njáll var á þessum tíma orðinn þekktur aflraunamaður og hafði nokkrum mánuðum áður sett tvö heimsmet. Hann hafði annars vegar tætt í sundur tíu símaskrár á 1,16 mínútum og hins vegar hafði hann gengið á grófum glerbrotum, sem voru brotin á staðnum og því gjörsamlega óslípuð.
Frétt Morgunblaðsins frá því í júlí 1993. Ljósmynd/Tímarit.is
Það sem kom Njáli á sporið var lítil frétt í Morgunblaðinu þar sem greint var frá Rússa sem var fær um að festa við líkamann alls kyns járnhluti.
Í júlí 1993 mætti Njáll á ritstjórn Morgunblaðsins til að sýna þessa ótrúlegu hæfni. „Þegar ég las um manninn í Morgunblaðinu langaði mig til að vita hvort þetta væri hægt, því ég hélt eins og þú að þetta væri með lími eða einhverju. Ég uppgötvaði að þetta var ekkert mál fyrir mig,“ sagði Njáll meðal annars í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Sagðist hann hafa þreifað sig áfram með hluti eins undirskálar, kveikjara og litla barnabók, en hlutir úr áli hentust þó frá.
„Á meðan Njáll var að ná ró og einbeitingu var gengið úr skugga um að áhöldin væru ekki smurð með neinu sem gæti fest þau við líkamann. Sömuleiðis eftir sýninguna voru áhöldin skoðuð eftir og það fór ekki á milli mála að þau voru hrein.
Fyrst þegar Njáll reyndi að festa við sig hlutina féllu þeir svo til strax af líkamanum, en smám saman eftir því sem hann varð rólegri og gat náð meiri einbeitingu fóru hlutirnir að festast. Og þar kom að straujárn, postulínsdiskur, skeið og gafflar sátu fastir á líkamanum.
Eitt sinn missti hann skeiðina og eðlileg viðbrögð voru að kippast við, en samt sat straujárnið og diskurinn föst. Þegar sýningunni var lokið bað blaðamaður um að fá að taka annan gafallinn af og var ekki að finna að neitt væri á honum sem hugsanlega gæti fest hann við ennið. Tilfinningin var heldur ekki eins og um segulmagn væri að ræða,“ skrifaði blaðamaður Morgunblaðsins.
Sjálfur sagði Njáll að þetta væri ekki segulorka því segull heldur postulíni ekki föstu. „Ég veit ekki hvað þetta er, en ég hef alla tíð verið umvafin sérstakri orku,“ sagði hann meðal annars í samtali við blaðamanninn og bætti jafnframt við að hann hefði verið skyggn frá barnsaldri. Það hefði háð honum alla tíð.
Hugsunin hefur hreyfiafl
Þetta sama ár birtist innslag í sjónvarpsþætti Stöðvar 2 þar sem Jón Ársæll og tökulið fylgdu Njáli eftir í einn dag þegar hópur fræðimanna við Háskóla Íslands gerði á honum tilraunir. Vísindamenn á rannsóknarstofu í lífeðlisfræði, fylgdust með Njáli gera kúnstir „sem fá hárin til að rísa á höfði manns“ eins og Jón Ársæll orðaði það. Þá voru viðstaddir kennarar í sálarfræði.
„Njáll hóf að gera þessar einstæðu tilraunir eftir að hafa lesið um rússneskan kraftaverkamann sem gat látið ýmisskonar búsáhöld festast við líkama sinn. Það kom fljótlega í ljós að Njáll var enginn eftirbátur Rússans og reyndar bætti hann um betur. Njáll getur „haldið á“ ýmsum munum sem ekki eru úr járni, svosem leirdiskum og plasthlutum og meira að segja straujárni, sem Rússinn getur ekki. Í dag sýndi hann ýmsum vísindamönnum háskólans ótrúlega getu sína á þessu sviði,“ sagði Jón Ársæll við sjónvarpsáhorfendur.
Úr sjónvarpsþætti Stöðvar 2, þar sem fylgst var með Njáli. Ljósmynd/Youtube.
Þá var rætt við Guðmund Einarsson verkfræðing og leitað svara við hvaða kraftar þetta væru sem Njáll byggi yfir og brytu í bága við lögmál Newton um aðdráttaraflið.
„Þetta er eitthvað fyrirbrigði sem ég myndi telja að væri tengt hugsuninni, „psychogenesis“, hún hefur hreyfiafl,“ sagði Guðmundur meðal annars. „Indverjar segja að heimurinn sé hugsun Guðs. Eins og þegar þú getur brotið glas með hugsun þá er talið að þú setjir hugaröldur í gang, þannig að þær verða harmonískar við eðlistíðni efnisins sjálfs. Þegar þú hittir akkúrat á það, splundrast glerið. Þetta hefur verið gert undir eftirliti.“
Ljósmynd/Youtube
Þá sagði Þór Eysteinsson taugalífeðlisfræðingur að þetta væru „hlutir sem hann hefði ekki séð áður.“ Hann hefði að vísu ekki gert mikið annað þennan dag en að fylgjast með Njáli leika listir sínar, og því hefði hann ekki rannsakað það sem fram fór. Hann sagðist því lítið geta sagt til um hvað væri þarna að baki. „En þetta er athyglisvert.“
Sjálfur sagðist Njáll „alltaf hafa fundið fyrir þessum krafti“ en aldrei dottið í hug að láta reyna á þennan kraft, ekki fyrr en hann sá mynd af fyrrnefndum Rússa. „Þegar ég prufaði þetta, þú hefðir átt að sjá til mín, ég hló svo mikið. Ég var svo hissa sjálfur.“
KR 2-0 Valur 1-0 Kristján Flóki Finnbogason(45′) 2-0 Ægir Jarl Jónasson(68′) KR er Reykjavíkurmeistari árið 2020 eftir úrslitaleik við Val í kvöld en spilað var á Hlíðarenda. Það var boðið upp á fínasta leik en KR-ingar höfðu betur 2-0 og fagna þar með sigri annað árið í röð. Kristján Flóki Finnbogason skoraði fyrra mark KR Lesa meira
Líkt og fram kom í síðustu viku er útlit fyrir að bíóið hætti rekstri í maí næstkomandi. Tatiana telur að kvikmyndahúsið vinsæla sé stofnun sem þjóni miklum tilgangi, en í pistlinum ræðir hún hlutverk Paradísar.
„Um árabil hefur borgin beitt sér fyrir öflugu kynningarstarfi í þágu Kvikmyndaborgarinnar Reykjavík. Kynningardeildin Film in Iceland, undir hatti Íslandsstofu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðs, var sett á laggirnar sérstaklega til þess hampa Reykjavík sem vænlegum tökustað og til þess að auka sóknarfæri íslenskrar kvikmyndagerðar. Í ljósi þess að framtíð menningarhússins Bíó Paradísar er ógnað, velti ég fyrir mér hvort yfirvöld og borgarstjórn sjái virkilega ekki harminn í því að missa þessa mikilvægu stofnun sem er jafnframt eina kvikmyndahús sinnar tegundar á Íslandi.“
Tatiana vitnar í Sigríði Pétursdóttur, kvikmyndafræðing, sem benti á sérstöðu Bíó Paradísar
„Eina kvikmyndahúsið sem sýnir fjölbreyttar kvikmyndir frá öllum heimshornum, sinnir kvikmyndahátíðum, og kvikmyndamenntun barna og unglinga. Framúrskarandi kvikmyndagerð þjóða verður ekki til í tómarúmi.“
Í pistlinum greinir Tatiana frá samskiptum sínum við einn helsta kvikmyndagagnrýnanda heims, Peter Debruge. Hann á að hafa elskað Bíó Paradís og haft sérstakan áhuga á Svörtum sunnudögum, vikulegum sýningum á klassískum kvikmyndum sem fram fara í bíóinu vinsæla.
„Þegar ég starfaði hjá Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík fékk ég tölvupóst frá einum þekktasta gagnrýnanda samtímans, Peter Debruge hjá Variety. Hann vildi fræðast meira um Svarta sunnudaga, elskaði Bíó Paradís og sagði að andinn í húsinu veitti honum innblástur og það gerir hann svo sannarlega líka fyrir okkur sem elskum kvikmyndir. Bíó Paradís er vin í eyðimörkinni, staður þar sem við getum heimsótt gamla vini á borð við Bergman, Kubrick og Hitchcock og nýja vini á borð við Yorgos Lanthimos, Bong Joon Ho og Ari Aster. Staður sem fræðir og sameinar, staður þar sem ég hef hlegið og grátið.“
Tatiana minnist á Hildi Guðnadóttur og þá velgengni sem kvikmyndalist og menning á Íslandi hefur fagnað undanfarið. Hún bendir þó á að hið góða sé ekki bara hægt að meta í peningum og verðlaunagripum.
„Nú þegar allir keppast óðum við að hylla velgengni Hildar Guðna, get ég ekki annað en velt vöngum yfir samvitund okkar sem þjóð. Þegar vel gengur viljum við vera Kvikmyndaborgin Reykjavík, en velgengnin er ekki einungis mæld í peningum eða verðlaunagripum. Kvikmyndaborgin Reykjavík þarf heimili fyrir kvikmyndirnar. Ávinningurinn er skýr og auðæfin eru ómetanleg.“
Það sást í Úkraínumálinu að sá frambjóðandi Demókrata sem Donald Trump óttast mest er Joe Biden. Biden er kannski ekki sérlega aðlaðandi frambjóðandi en hann er, þegar öllu er á botninn hvolft, líklegastur til að geta sigrað Trump í lykilríkjunum þar sem úrslitin í kosningunum ráðast. Það skiptir ekki miklu máli hvernig atkvæðin í New York ríki eða Kaliforníu falla, Demókratar munu alltaf vinna þar – lýðræðið í Bandaríkjunum er orðið svo gallað að það eru úrslit í örfáum ríkjum sem allt veltur á. Gleymum ekki að Hilary Clinton fékk 2,87 milljón fleiri atkvæði en Trump í kosningunum 2016 en tapaði samt. Slíkt getur hæglega endurtekið sig.
Trump fór alla leið til Úkraínu til að reyna að ná taki á Biden. Í dag eru forkosningar hjá Demókrötum, þær fyrstu, í Iowa. Biden og Sanders eru taldir líklegastir til að sigra. Klárasti frambjóðandinn, Elizabeth Warren, er að heltast úr lestinni. Það er kannski satt sem sagt er að nokkuð sé í að Bandaríkjamenn kjósi konu sem forseta. Eftir eru þessir tveir karlar sem eru komnir langt undir áttrætt, Sanders 78 ára, Biden 77 ára. Það er svo tímanna tákn að þeir koma úr mismunandi örmum, Biden er hægfara, í raun hægri maður, en Sanders hikar ekki við að nota orðið sósíalismi. Þeir sem kjósa Sanders í forkosningum munu ekki endilega kjósa Biden í kosningunum sjálfum – og öfugt. Úr herbúðum Sanders eru þegar farin að heyrast hljóð um að flokkseigendafélagið hjá Demókrötum sé farið að reyna að bregða fæti fyrir hann.
Sú kenning er uppi að ólíkt Biden sé Sanders draumaandstæðingur Trumps og hans manna. Það verði auðvelt að eiga við hann í kosningunum. Þá verði mikið gert úr sósíalisma hans, að hann sé á móti amerísku „leiðinni“, að hann sé óþjóðlegur.
En svo er reyndar önnur kenning sem hljómar þannig að Sanders gæti höfðað til sömu óánægðu kjósenda og Trump vann á sitt band 2016. Að hinn nokkuð pópúlíski málflutningur hans og stór fyrirheit muni hljóma sætlega í eyrum þessara beisku kjósenda. Miðað við það er Biden auðvitað óttalegur kerfiskarl. Á móti kemur að Biden á mjög sterkan stuðning meðal svartra kjósenda, þar hefur Sanders átt erfitt uppdráttar, en hefur reyndar sótt á innan þessa hóps upp á síðkastið.
Fyrirsætan Erjona Sulejmani segir að það séu margir knattspyrnumenn sem séu samkynhneigðir en neiti að koma út úr skápnum. Sulejmani er tengd inn í knattspyrnuheiminn en hún var eitt sinn gift svissnenska landsliðsmanninum Blerim Dzemaili. Það hefur lengi verið vandamál fyrir knattspyrnumenn að opna sig varðandi kynhneigð og er hægt að telja þá upp á Lesa meira
Manchester United íhugaði að fá reynsluboltann Glenn Murray frá Brighton á lokadegi félagaskiptagluggans. Frá þessu greinir the Daily Mail en United reyndi við nokkur nöfn áður en glugginn lokaði. Það var Odion Ighalo sem gekk að lokum í raðir United en hann kom á láni frá Kína. Murray er 36 ára gamall sóknarmaður en hann Lesa meira