Quantcast
Channel: DV
Viewing all 50663 articles
Browse latest View live

Landsréttur hafnaði kröfum Eimskips

$
0
0

Landsréttur hafnaði kröfum Eimskips í máli sem fyrirtækið hefur rekið í því skyni að dómstólar stöðvi rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ætluðu ólögmætu samráði fyrirtækisins við Samskip, samkvæmt tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Í málinu fyrir Landsrétti krafðist Eimskip þess að aflétt yrði haldi sem Samkeppniseftirlitið hefði lagt á gögn fyrirtækisins við húsleitir hjá því og að afritum gagnanna yrði eytt.

Forsaga málsins er að þann 1. júlí 2019 krafðist Eimskip þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði um það annars vegar að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ætluðu ólögmætu samráði fyrirtækisins við Samskip væri ólögmæt og að henni skyldi hætt og hins vegar að aflétt yrði haldi sem hafði verið lagt á gögn fyrirtækisins við húsleitir hjá því 10. desember 2013 og 4. júní 2014 og að afritum gagnanna yrði eytt.

Til stuðnings kröfum sínum hefur Eimskip byggt m.a. á því að rannsókn málsins hafi tekið óeðlilega langan tíma, að Samkeppniseftirlitið hafi blekkt dómstóla, að haldlagning gagna í húsleitunum hafi verið ólögmæt og að starfsmenn eftirlitsins séu vanhæfir þar sem þeir hafi tekið þátt í rannsókn lögreglu á þætti stjórnenda Eimskips í hinu ætlaða samráði. Einnig hafi Samkeppniseftirlitið brotið gegn mannréttindum Eimskips, m.a. þar sem eftirlitið hefði haldið áfram rannsókn málsins eftir að hafa áður fellt hana niður. Samkeppniseftirlitið hefur fyrir dómstólum rökstudd að ekkert sé hæft í þessum málatilbúnaði Eimskips.

Þann 10. október 2019 vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur frá umræddri kröfu Eimskips um að úrskurðað yrði að rannsókn Samkeppniseftirlitsins væri ólögmæt og að henni skyldi hætt. Eimskip kærði úrskurðinn til Landsréttar. Með úrskurði 24. október 2019 staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms. Eftir stóð þá krafa Eimskips um að aflétt yrði haldi sem hafði verið lagt á gögn fyrirtækisins og að afritum slíkra gagna yrði eytt.

Með úrskurði 18. desember hafnaði Héraðsdómur Reykjavíkur þeirri kröfu Eimskips sem eftir stóð, þ.e. að aflétt yrði haldi sem var lagt á gögn fyrirtækisins og að afritum gagnanna yrði eytt. Eimskip skaut málinu til Landsréttar.

Með úrskurði sínum í gær staðfesti Landsréttur úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. Í úrskurðinum kemur fram að gögn málsins beri á engan hátt með sér að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ætluðu samráði Eimskips og Samskipa hafi verið felld niður og ekkert liggi fyrir um að húsleitir, haldlagning og rannsókn eftirlitsins á gögnum Eimskips hafi verið ólögmæt. Þá veiti samkeppnislög heimild til þess að Samkeppniseftirlitið taki þátt í rannsóknaraðgerðum lögreglu. Taldi Landsréttur að Eimskip hefði ekki fært haldbær rök fyrir því að um vanhæfi starfsmanna eftirlitsins væri að ræða. Þá segir í úrskurðinum: „Stjórnsýslumálið á hendur varnaraðilum hefur tekið langan tíma. Af fyrirliggjandi gögnum er hins vegar ljóst að það er mjög umfangsmikið og það dregur að lokum þess, en fyrir Landsrétti lagði [Samkeppniseftirlitið] andmælaskjal II í málinu frá 13. desember síðastliðnum, sem telur 1168 blaðsíður. Varnaraðilar hafa engin rök fært fyrir því að afrit hinna haldlögðu gagna hafi ekki þýðingu við þá rannsókn sem eftir stendur og við úrlausn stjórnsýslumálsins.“ Þá geti Eimskip látið reyna á rannsókn Samkeppniseftirlitsins á síðari stigum.

Vegna fyrirspurna um stöðu rannsóknarinnar skal eftirfarandi tekið fram:

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist að því hvort Eimskip og Samskip hafi haft með sér ólögmætt samráð á mörkuðum fyrir sjóflutninga, flutningsmiðlun og landflutninga og brotið gegn 10. gr. samkeppnislaga og 53. gr. EES-samningsins. Hófst þessi rannsókn í kjölfar ábendinga frá bæði viðskiptavinum og keppinautum Eimskips og Samskipa.

Samkeppniseftirlitið hefur haft möguleg brot fyrirtækjanna til samfelldrar rannsóknar og er hún vel á veg komin. Meðal annars hefur Samkeppniseftirlitið gefið fyrirtækjunum kost á að tjá sig um frummat eftirlitsins, en eftirlitið gætir andmælaréttar fyrirtækja í málum af þessu tagi með því að gefa út svokallað andmælaskjal. Í málsmeðferðarreglum Samkeppniseftirlitsins kemur fram að í andmælaskjali „skal helstu atvikum málsins lýst og greint frá grundvelli þess í aðalatriðum að tilteknar aðstæður eða háttsemi kunni að fara gegn ákvæðum samkeppnislaga.“

Eimskipi og Samskipum hefur verið gefið tækifæri til að nýta andmælarétt sinn í tveimur áföngum. Fyrra andmælaskjalið var birt fyrirtækjunum þann 6. júní 2018 og þeim boðið að koma að athugasemdum og sjónarmiðum sínum á framfæri. Hvorugt fyrirtækjanna nýtti sér þann rétt sinn. Síðara andmælaskjalið var sem fyrr segir birt fyrirtækjunum 13. desember 2019. Hafa fyrirtækjunum nú verið gefnir frestir til að koma athugasemdum og sjónarmiðum sínum á framfæri.

Mál þetta sætir forgangi hjá Samkeppniseftirlitinu. Er umfang rannsóknarinnar, þar á meðal undirliggjandi gagnamagn, án fordæma við rannsókn samkeppnismála hér á landi.


Frábært húsráð: Allt sem hún þurfti var majónes – Sjáðu muninn

$
0
0

Þú þarft ekki alltaf að nota sterk og jafnvel stórhættuleg efni til að ná illviðráðanlegum óhreinindum í burtu. Það sannaði kona ein á dögunum þegar hún notaði majónes til að hreinsa lím af glugga í stofunni heima hjá sér. Það kannast eflaust margir við að erfitt getur verið að ná lími eftir límmiða af hörðum Lesa meira

Emre Can til Borussia Dortmund

$
0
0

Borussia Dortmund hefur staðfest komu miðjumannsins Emre Can frá Juventus. Can kemur frá Juventus á láni en félagið þarf svo að kaupa hann endanlega á 30 milljónir evra. Can ákvað fyrr í vetur að yfirgefa Juventus til að fá frekari mínútur fyrir EM sem byrjar næsta sumar. Þessi fyrrum leikmaður Liverpool var ekki í myndinni Lesa meira

Maður sem kastaði upp af völdum höfuðverkja var búinn að vera með bandorm í heilanum í 10 ár

$
0
0

Maður sem kastaði upp af völdum höfuðverkja var búinn að vera með bandorm í heilanum í 10 ár. Læknar telja að bandormurinn hafi stækkað hægt og rólega síðan maðurinn smitaðist eftir að hafa borðað svínakjöt, sem ekki var fulleldað, í Mexíkó. Maðurinn, sem þjáðist af höfuðverkjum sem voru svo slæmir, að hann kastaði upp, hefur Lesa meira

Boateng til Tyrklands

$
0
0

Miðjumaðurinn Kevin-Prince Boateng var að ganga í raðir tyrknenska félagsiðs Besiktas. Boateng gerði hálfs árs langan lánssamning við Besiktas sem er eitt öflugasta lið Tyrklands. Um er að ræða 32 ára gamlan miðjumann sem lék með Fiorentina fyrr á þessu tímabili. Hann spilaði alls 14 deildarleiki fyrir Fiorentina og skoraði eitt mark. Boateng hefur spilað Lesa meira

Lífslíkur aukast í fyrsta sinn í fjögur ár

$
0
0

Í fyrsta sinn í fjögur ár hafa lífslíkur Bandaríkjamanna aukist samkvæmt opinberum tölum sem birtar voru á dögunum. Hvert barn sem fæddist í Bandaríkjunum árið 2018 getur vænst þess lifa til 78 ára og 8 mánaða aldurs. Þó aukningin sé ekki mikil frá 2017 – aðeins einn mánuður – þykja þetta nokkur tíðindi. Lífslíkur Bandaríkjamanna Lesa meira

Lögreglumaður læsti átta ára einhverfan son sinn inni í bílskúr – Fraus í hel

$
0
0

Lögreglumaðurinn Michael Valva, sem býrí Suffolk County í New York í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa orðið syni sínum að bana. Michael læsti hann inni í bílskúr yfir nótt. Sonurinn, sem var átta ára og einhverfur, var látinn þegar bílskúrinn var opnaður næsta dag. Sjö stiga frost var þessa nótt. Þegar lögregla Lesa meira

Ísak skrifaði undir samning út tímabilið – Vinnur með Joey Barton

$
0
0

Miðjumaðurinn Ísak Snær Þorvaldsson hefur skrifað undir samning við Fleetwood Town. Þetta staðfesti Norwich nú rétt í þessu en Ísak er 18 ára gamall miðjumaður og þykir mikið efni. Fleetwood spilar í League One og er að berjast um að komast í Championship-deildina. Ísak gerir lánssamning við Fleetwood út tímabilið og fær vonandi að spila Lesa meira


Svona fékk hún börnin til að þvo sér um hendurnar – Einföld tilraun með brauð

$
0
0

Hvernig er hægt að fá ung grunnskólabörn (og aðra) til að skilja hversu mikilvægur handþvottur er? Þessu hafði Rikke Elisabeth Tang Steffensen, kennari í Sulsted grunnskólanum í Danmörku, velt fyrir sér og óhætt er að segja að hún hafi fundið góða lausn á þessu. Hún rakst nýlega á nokkrar myndir á netinu, sem bandarískur kennari Lesa meira

Ryan Bennett til Leicester City

$
0
0

Varnarmaðurinn Ryan Bennett er genginn í raðir Leicester City á lokadegi félagaskiptagluggans. Þetta var staðfest í kvöld en Bennett skrifaði undir lánssamning út tímabilið. Bennett er 29 ára gamall varnarmaður og hefur spilað með Wolves í þrjú ár. Hann hefur ekki átt fast sæti í liði Wolves á tímabilinu og hefur spilað 11 deildarleiki.

Lossl lánaður til Huddersfield

$
0
0

Everton hefur ákveðidð að lána markvörðinn Jonas Lossl aftur til Huddersfield. Lossl kom til Everton í sumar og ætlaði að berjast við Jordan Pickford um markvarðastöðuna. Það hefur hins vegar ekki gengið og hefur Lossl ekki spilað einn deildarleik á Goodison Park. Lossl lék með Huddersfield frá 2017 til 2019 og mun nú reyna að Lesa meira

Borja Baston til Aston Villa

$
0
0

Framherjinn Borja Baston er genginn í raðir Aston Villa en þetta var staðfest í kvöld. Baston kemur á frjálsri sölu frá Swansea en hann skoraði sex mörk í 19 leikjum fyrir félagið í næst efstu deild. Baston átti sex mánuði eftir af samningnum sínum í Wales og tekur Villa yfir þann samning. Ef hann nær Lesa meira

Jarrod Bowen til West Ham

$
0
0

Jarrod Bowen er genginn í raðir West Ham United á Englandi og kemur til félagsins frá Hull City. Bowen er 23 ára gamall vængmaður sem getur einnig leyst aðrar stöður framarlega á vellinum. Hann hefur verið frábær fyrir Hull síðustu tvö tímabil og vakti athygli stærri liða. West Ham borgar 20 milljónir punda fyrir Bowen Lesa meira

Odion Ighalo til Manchester United

$
0
0

Sóknarmaðurinn Odion Ighalo er genginn í raðir Manchester United frá Shanghai Shenhua. Þetta var staðfest í kvöld en Ighalo var óvænt orðaður við enska félagið á lokadegi gluggans. Ighalo hefur verið duglegur að skora í Kína en hann skrifaði undir sex mánaða lánssamning. Það er möguleiki fyrir United að kaupa Ighalo í sumar ef hann Lesa meira

Sjáðu atvikið: Fernandes fór strax í treyju Wolves

$
0
0

Bruno Fernandes spilaði sinn fyrsta leik fyrir Manchester United í kvöld gegn Wolves. Fernandes er nýkominn til United frá Sporting Lisbon og lék allan leikinn í markalausu jafntefli. Strax eftir leik þá skipti Fernandes á treyju við Daniel Podence, leikmann Wolves. Fernandes var ekki lengi að klæða sig í treyjuna strax eftir lokaflautið sem er Lesa meira


Einkunnir úr leik Manchester United og Wolves: Fernandes fær sex

$
0
0

Bruno Fernandes spilaði sinn fyrsta leik fyrir Manchester United í kvöld gegn Wolves. Fernandes er nýkominn til United frá Sporting Lisbon og lék allan leikinn í markalausu jafntefli. Hann fær sex í einkunn fyrir sína frammistöðu í kvöld en Mirror gaf einkunnir eftir leik. Harry Maguire, fyrirliði United, var valinn maður leiksins. Manchester United: De Lesa meira

„Mér finnst ég bara vera útskúfaður ræfill“

$
0
0

„Ég meina – þetta er endalaust kjaftshögg alltaf hreint. Það er alveg sama hvert þú leitar, þú færð aldrei almennileg svör. Enginn virðist vita neitt í sinn haus hvernig maður eigi að snúa sér í sambandi við hlutina,“ segir öryrki á sjötugsaldri sem stendur í ströngu við skattinn. Maðurinn, sem við skulum kalla Jón, skuldar skattinum rúmlega tvær milljónir króna vegna skattaákvörðunar fyrir árið 2014, þrátt fyrir að hann hafi verið lýstur gjaldþrota árið 2016.

Lokaðar dyr

Jón er í dag öryrki vegna ýmissa kvilla, meðal annars vegna slit- og vefjagigtar eftir langa ævi af erfiðisvinnu. Hann harkaði þó lengi af sér á vinnumarkaði en í kjölfar hrunsins fóru fjármálin í ógöngur. Hann sá sig því nauðbeygðan til að lýsa sig gjaldþrota árið 2016.

„Þá var ég með skattaskuld og mér var sagt að allt færi inn í gjaldþrotið. En ég er ekki enn kominn almennilega út úr þessu þroti. Ég er enn á svörtum lista eftir öll þessi ári, það er árið 2020 núna. Eftir tvö ár átti ég að vera frjáls til að byrja lífið upp á nýtt. En það fór aldeilis ekki þannig. Það er kannski vegna þess að ég er öryrki og hef ekkert bolmagn til að berjast fyrir mínum rétti. Það hlustar enginn á mig og það er alveg sama hvert ég sný mér, ég kem alls staðar að lokuðum dyrum. Það hefur enginn tíma til að hlusta eða veita einhver ráð. Það er eins og maður sé ekki til í þjóðfélaginu.“

Skattaskuldinni var lýst í þrotabúið sem reyndist eignalaust. Ári eftir gjaldþrotið barst tilkynning frá skattinum. Skattar vegna tekjuársins 2014 höfðu verið endurákvarðaðir. Þar með væri komin ný skuld, sem ekki félli undir gjaldþrotið, þrátt fyrir að eiga rætur að rekja til sömu skuldar og lýst var í búið.

Afturvirk skuld

„Já, þetta kom mér svolítið á óvart. Að fá svona bréf. Svo fór ég að spyrjast fyrir um hvað þetta væri og þá var mér sagt að ég gæti ekki borgað krónu inn á þetta, þá fengi ég alla skuldina, líka það sem lýst var í þrotabúið, aftur í andlitið. En það hvarflaði aldrei að mér að þetta færi svona.“

Sjónarmið skattsins er að við endurákvörðun sem þessa þá stofnist krafan í reynd við endurákvörðunina, en miði ekki við tekjuárið sem hún verður til vegna. Þar sem fyrningartíma krafna í þrotabúi Jóns var ekki lokið þá var Jóni bent á að ef hann færi að greiða inn á þessa nýju skuld, eða semja um hana, ætti hann á hættu að rjúfa fyrningu eldri kröfunnar og þar af leiðandi gæti skatturinn haldið áfram að rukka hana.

Jón kærði ákvörðun Ríkisskattstjóra til fjármála- og efnahagsráðuneytisins, en niðurstaðan var sú sama. Hann þyrfti að greiða þessa endurákvörðuðu skuld. Jón kom því skuldugur út úr gjaldþroti.

„Ég fékk bara bréf. Sem ég skildi ekki og fór með til lögmanns sem var svo yndislegur að fara yfir þetta fyrir mig og senda þeim bréf. Þá fékk ég þessa skýringu; að það var gerð afturvirk skattabreyting árið 2017 á skattaákvörðun frá 2014. Ég hélt að þetta væri bannað, en ég fæ hvergi svör um það hvernig megi breyta hlutunum svona á afturábak.“

Mistök endurskoðanda

Endurákvörðunina má rekja til mistaka sem áttu sér stað við framtal. Jón hins vegar gerði framtalið ekki sjálfur. Á þeim tíma hafði hann verktakalaun og treysti sér ekki til að sjá sjálfur um skattamálin.

„Ég taldi ekki eitt né neitt fram. Ég fór bara með allt mitt til endurskoðanda. Ég treysti því bara 100% að það væri allt rétt sem kæmi frá endurskoðandanum. En lögmaðurinn segir að þarna hafi einhver mistök verið gerð. Það sem kemur mér mest á óvart er að það sé hægt að gera þessa breytingu svona á afturábak og koma fólki í fangelsi skulda. Mér finnst þetta virka eins og einhver geðþóttaákvörðun hjá þessu fólki. Ég verð bara í sama fangelsinu það sem ég á eftir ólifað því ég á engan pening til að borga þetta. Ef ég ætti pening til að fara aftur í þrot myndi ég skoða að gera það. En ég á hann ekki til.“

Má éta það sem úti frýs

Jóni fannst þessi ákvörðun skattsins engan veginn geta staðist og leitaði til starfsfólks skattsins eftir ráðum. En fékk hann þar einhverjar leiðbeiningar, einhver ráð?

„Nei, ég fékk engin önnur svör en þau að ég yrði bara eltur. Þeir mega svo sem koma heim til mín og taka það sem ég á þar. En ég á ekkert í mínu innbúi. Dóttir mín á einn sófa og vinur minn annan. Ein vinkona mín á sjónvarpið, strákurinn minn á þrjá gítara sem eru þarna. Það eina sem ég á er rúmið og þeir mega bara taka það. Það er það eina sem ég á.“

Nýja lífið sem átti að taka við eftir gjaldþrotið kom aldrei. Nú hefur skatturinn gert árangurslaust fjárnám hjá Jóni vegna skuldarinnar, og hann sér ekki fram á að komast nokkurn tímann af svörtum lánshæfislistum.

„Af því að ég er öryrki þá svona eiginlega má ég bara éta það sem úti frýs. Mér finnst ég bara vera útskúfaður ræfill. Fyrir öllum. Ég fæ það á tilfinninguna að ég sé ekki þess virði að segja við. Það er það viðhorf sem mætir mér þegar ég þarf að leita mér aðstoðar einhvers staðar í kerfinu. Ég vona bara að þetta blessaða fólk verði aldrei fullorðið eða veikist.“

Sjáðu rifrildi Mbappe við stjórann: Allt annað en sáttur – Labbaði burt

$
0
0

Kylian Mbappe, leikmaður Paris Saint-Germain, var hundfúll í leik gegn Montpellier í kvöld. PSG vann öruggan 5-0 heimasigur á Montpellier þar sem Mbappe skoraði fjórða mark liðsins. Á 68. mínútu ákvað Thomas Tuchel að taka framherjann af velli fyrir Mauro Icardi. Sú ákvörðun fór alls ekki vel í Mbappe sem var allt annað en sáttur Lesa meira

Brynjar gagnrýndur fyrir rasisma –„Ógeðslegt að fólk skuli láta svona“

$
0
0

Brynjar Barkarson, annar helmingur raftónlistartvíeykisins Club Dub, hefur vakið athygli vegna færslu á Instagram-síðu sinni sem hefur verið víða dreifð og farið fyrir brjóstið á ófáum netverjum.

Á síðu sinni birtir hann mynd með það að markmiði að slá á létta strengi en telja margir að umrætt grín hafi borið merki um kynþáttafordóma. Færsla þessi snýr að kórónaveirunni margumtöluðu og sést Brynjar standa frammi fyrir afgreiðslumanni í verslun. Í kjölfar vaxandi umtals hefur Brynjar eytt myndinni og beðist afsökunar en hafa margir verið duglegir að deila skjáskotum á veraldarvefnum og tjáð sína skoðun.

Brynjar Steinn, betur þekktur sem Binni Glee, er á meðal þeirra sem benti á færsluna umtöluðu og veltir fyrir sér hvers vegna fleiri séu ekki að ræða um myndbirtinguna. „Þetta er bara svo rangt,“ skrifar Binni á Twitter, en á aðgangi hans hefur myndast líflegur þráður þar sem netverjar deila um gildi grínsins sem um ræðir. Binni fullyrðir að myndatakan og myndbirtingin sé tvímælalaust „rasísk“.

„Það er svo lítið talað um rasisma á Íslandi en rasismi er til staðar hér á landi og það er ógeðslegt og ógeðslegt að fólk skuli láta svona og skuli ekki segja neitt,“ skrifar einn Twitter-notandi við þráð Binna. Fleiri taka í sama streng.

„Það eina rasíska í þessarri mynd er myndatakan sjálf og myndbyrtingin – svo og sú staðreynd hvort hann setti upp grímuna aðeins til þess að vera með hana á kassanum. Það að verja sig á almannafæri með öndunargrímu er hins vegar EKKI rasískt,“ skrifar annar.

Kynlífsbloggarinn Kara Kristel Ágústsdóttir tjáir sig við þráð Binna með stuttum en hnitmiðuðum hætti, þar sem hún ritar með svonefndum „ælutjáknum.“

Tæpum sólarhring eftir myndbirtinguna gefur Brynjar út yfirlýsingu í Instagram Story hjá sér. Segist hann þar játa að myndin umtalaða hafi sýnt merki um útlendingahatur og segir birtinguna hafa komið til í hugsunarleysi, en hann hyggst læra af reynslunni og vonar að fleiri geri hið sama. Brynjar segir:

„Ég póstaði mynd í gær sem var rasísk. Vegna fáfræði minnar fattaði ég ekki að hún væri rasísk. Nú veit ég það og vil biðja alla innilegrar afsökunar. Ég mun læra af þessu og vonandi munu fleiri geta gert það líka. Rasismi er ógeðslegt samfélagsmein sem þarf að uppræta og er alls ekki það sem ég stend fyrir. Ég elska alla.“

 

Hvað segja lesendur? Á gagnrýnin á færslunni rétt á sér eða er einfaldlega um saklaust grín að ræða?

Forseti Atletico brjálaður eftir kröfur Cavani

$
0
0

Enrique Cerezo, forseti Atletico Madrid, hefur gagnrýnt Edinson Cavani, leikmann Paris Saint-Germain. Atletico reyndi að fá Cavani frá PSG í janúar en hann fær lítið að spila í Frakklandi þessa dagana. Talið er þó að bróðir Cavani hafi heimtað 18 milljónir evra í bónusum svo hann myndi skrifa undir á Spáni ,,Ég vil ekki benda Lesa meira

Viewing all 50663 articles
Browse latest View live